Störf þingsins.
Frú forseti. Í síðustu viku fór fram 2. umræða um sameiningu sýslumannsembættanna. Allsherjar- og menntamálanefnd hefur fjallað um málið nú í tvígang og gaumgæft málið vel. Það eimir þó eftir tortryggni, m.a. vegna biturrar reynslu á vakt fyrri ríkisstjórna þar sem slíkar sameiningar hafa leitt til þess að mikilvæg störf hafa lekið frá landsbyggð yfir til höfuðborgarsvæðisins. Mitt hjarta slær fyrir byggðafestu og fjölbreyttari tækifærum á landsbyggðinni. Það er mín skoðun að bestu landsbyggðaraðgerðirnar séu bættar vegasamgöngur og raforkuöryggi. Það er stefna þessarar ríkisstjórnar að forgangsraða fjármunum í nauðsynlega innviðauppbyggingu af þessum meiði. Ég trúi því að með því muni kraftar sannarlega leysast úr læðingi og atvinnutækifærum fjölga sömuleiðis, enda skortir yfirleitt ekki hugvit, frumkvöðlakraft og athafnagleði hjá okkur Íslendingum.
Forseti. Í því skyni að slá á ótta og efasemdir um ætlun ríkisstjórnarinnar langar mig að vekja í dag athygli þingheims á því að í virku samráði við dómsmálaráðherra mun meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggja fram breytingartillögu milli 2. og 3. umræðu um að sýslumanni beri að tryggja að hið minnsta 65% stöðugilda embættisins séu hverju sinni staðsett á landsbyggðinni. Jafnframt leggjum við til að nýtt ákvæði til bráðabirgða, um að meta eigi markmið laga um sýslumann innan þriggja ára, verði lagt fyrir þingið, sem sagt skýrsla sem verði lögð fyrir þingið eigi síðar en haustið 2030. Þetta gerum við í því skyni að slá á tortryggni vegna þess að við viljum festa störf í sessi úti á landi og mæta þeim sjónarmiðum með þessum hætti.