Störf þingsins.
Frú forseti. Seinustu daga hafa verið fluttar margar fréttir af þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin á Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir að þrír læknar sögðu þar upp störfum. Aðdragandinn að þeirri stöðu sem nú er komin upp er enn þá lengri en það. Helga Björk Heiðarsdóttir og Guðjón Kristjánsson, læknar á sjúkrahúsinu, birtu fyrir helgi grein á miðlinum Akureyri.net, sem ég hvet alla hv. þingmenn til að lesa. Ég ætla að leyfa mér að lesa brot úr henni, með leyfi forseta:
„Staðan á Sjúkrahúsinu á Akureyri er alvarleg en rétt er að greina frá því að hún er margþætt og á sér lengri aðdraganda en uppsagnir ferliverkasamninga eins og hefur verið til umræðu í fjölmiðlum. Þetta hefur áhrif á heilbrigðiskerfið í heild sinni en ekki einungis upptökusvæði SAk og snertir því augljóslega öryggi sjúklinga víða. Athyglin virðist öll á ferliverkasamningum en fátt annað heyrist opinberlega. Víðtækur, kerfislegur og alvarlegur vandi í lengri tíma en uppsagnir ferliverkasamninga án annarra raunhæfra lausna fylltu mælinn.“
Frú forseti. Hérna er fólkið á gólfinu að vekja athygli á þeirri stöðu sem upp er komin og þá ber okkur að hlusta. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins, hefur jafnframt í samtölum við fjölmiðla reynt að opna augu fólks fyrir því að það er dýrara og erfiðara að reka og manna stofnanir úti á landi. Í frétt á Vísi er haft eftir forstjóranum, með leyfi forseta:
„Það er aukið álag á lækninn. Það er aukin ábyrgð, því þú þarft að hafa eftirlit með fjölbreyttari hópi innan þinnar sérgreinar. Svo ertu oft einn á vakt en á meðan þú ert í Reykjavík ertu með fólk í kringum þig og þú getur reitt þig á stuðning annarra kollega.“
Frú forseti. Það er þetta forskot þegar kemur að mönnun sem stór stofnun eins og Landspítalinn hefur samanborið við minni stofnanir úti á landi sem við þurfum að eiga samtal um og bregðast við til að jafna leikinn. Getum við breytt skattkerfinu, launaívilnunum, menntasjóðnum? Það er ákall eftir því að við skoðum þessa hluti af alvöru.
Um daginn samþykktum við hér í þingsal þingsályktunartillögu um borgarstefnu, frú forseti. Sjúkrahúsið á Akureyri gegnir þar lykilhlutverki og ef við bregðumst ekki við þeirri stöðu sem upp er komin á Sjúkrahúsinu á Akureyri með afgerandi hætti er borgarstefnan dæmd til að verða ekkert annað en orð á blaði. Neyðarástandið á Sjúkrahúsinu á Akureyri kallar á aðgerðir.