Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú bunkast inn nýir bílar til landsins. Samkvæmt fréttum hafa skipafélögin ekki undan að flytja hér inn nýja bíla. Hvernig skyldi standa á því? Jú, hæstv. ríkisstjórn hefur boðað það að hátt í tvöfalda vörugjöld á ökutæki núna eftir áramót. Hátt í tvöfalda, um 7,5 milljarða. Núna eru bílaleigurnar að kaupa nýja bíla, fjölskyldurnar eru að kaupa nýja bíla, bændur eru að endurnýja fjór- og sexhjól, fólk sem er í mótorsporti er að endurnýja tækin sín; það eru allir að keppast við að kaupa á gamla verðinu áður en hið nýja verð ríkisstjórnarinnar kemur og tekur gildi eftir áramót. Það sem er alvarlegra er að framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur komið fram í fréttum og sagt að það sé líklega vanmat að þessi hækkun muni hafa áhrif á verðbólgu um 0,1%, líklega eru áhrifin 0,2–0,3%.
Og hvað þýðir það? Jú, það þýðir að mögulega eru forsendur kjarasamninga brostnar. Kjarasamningar brostnir vegna vörugjalda sem við sjáum miðað við innkaup á nýjum bílum í dag að er ekki einu sinni að fara að innheimtast á nýju ári. Þessir 7,5 milljarðar eru ekki að fara að innheimtast af því að það eru allir að kaupa á gamla verðinu í dag til þess að þurfa ekki að kaupa á nýja verði ríkisstjórnarinnar eftir áramót. Og hvað sitjum við uppi með? Jú, ríkissjóður fær ekki milljarðana í kassann, heimilin sitja uppi með hærri verðbólgu og forsendur kjarasamninga eru jafnvel brostnar. Hvenær ætlar hæstv. ríkisstjórn að hætta að berja höfðinu við steininn í þessu máli og átta sig á því að stór hluti af þessum gjöldum og sköttum sem á að innheimta hér á næsta ári er ekki að fara að innheimtast?