157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Evrópusambandið braut á okkur. Það er ekki okkur að kenna. Það var þeirra ákvörðun, þeir voru að undirbyggja það í ellefu mánuði. Ég hef haft áhyggjur af því hvernig að málum hefur verið staðið gagnvart Evrópusambandinu frá því að þessi hæstv. ríkisstjórn tók við en ræða hæstv. utanríkisráðherra var ekki að lina eða minnka þær áhyggjur.

Þegar þessi alvarlega staða er uppi, virðulegi forseti, að Evrópusambandið brýtur á okkur af engri ástæðu, brýtur samning sem þeir hafa margoft sagt, eins og við, að sé svo mikilvægur að hann geri okkur að nánasta samstarfsríki þeirra, þá kemur hæstv. utanríkisráðherra hér upp í þessari umræðu og reynir að færa rök fyrir því að við eigum að ganga í Evrópusambandið. Hæstv. ráðherra byrjaði ræðu sína á því að vitna í Evrópusambandssinnann Gro Harlem Brundtland þar sem hún hafði áhyggjur af því að samningur við Evrópska efnahagssvæðið væri ekki nóg, það þyrfti að fara í tollabandalag. Það er engin frétt að Gro Harlem Brundtland sé Evrópusambandssinni. Það er engin frétt að hún klauf norsku þjóðina til að reyna að troða henni þar inn. Það er engin frétt. Þessi umræða um að við eigum núna, eftir að Evrópusambandið er búið að brjóta á okkur, að fara inn til að láta brjóta meira á okkur á ekki heima hér. Núna þurfum við Íslendingar að standa saman vegna þess að það er verið að brjóta á okkur.

Ég efast ekkert um það að starfsmenn utanríkisráðuneytisins hafi eins og áður unnið sína vinnu samviskusamlega. Það er ekki vandamál í þessu máli. Vandamálið eru pólitísk skilaboð íslensku ríkisstjórnarinnar. Á þessum ellefu mánuðum sem Evrópusambandið hefur undirbúið það að brjóta á okkur, hvaða skilaboð hafa íslensk stjórnvöld sent? Þau hafa sent þau skilaboð til Evrópusambandsins að við viljum gera allt til að komast inn. Á sama tíma og þeir voru að undirbúa að brjóta á okkur mátti ekki koma svo aum viljayfirlýsing eða samstarfssamningur að íslenska ríkisstjórnin segði ekki: Við viljum endilega skrifa undir. Síðan þegar hér kemur formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og hún er að sjálfsögðu velkomin eins og allir aðrir góðir gestir (Gripið fram í.) — nú er hæstv. utanríkisráðherra að fara á taugum og kalla eitthvað rugl fram, en látum það liggja á milli hluta. Á sama tíma og hún kemur hér, sem hefði verið kjörið tilefni til þess að formaður framkvæmdastjórnar myndi segja skýrt að þau ætluðu að sjálfsögðu ekki að brjóta samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, var allt annað gert í þeirri heimsókn og aðallega reynt að koma fram með einhverja skýringu á því að við værum örugglega enn þá með virka aðildarumsókn. Ef svo er þá hefur Evrópusambandið skrökvað að sínu fólki og öllum heiminum í 15 ár. Það var markmiðið með heimsókninni. Það voru hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir og Ólafur Adolfsson sem vöktu athygli á því að hér væri hætta á ferð, ekki íslenska ríkisstjórnin. Nú segir hæstv. utanríkisráðherra: Ég ætla ekki að skrifa undir samstarfssamning. Skárra væri það nú, um leið og það er verið að berja á okkur, að skrifa ekki undir samstarfssamning. Það kom ekki út af því að það var frumkvæði frá hæstv. utanríkisráðherra eða ríkisstjórninni. Nei, það var hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir sem benti á hið augljósa, að það væri kannski ekki skynsamlegt, svona á meðan væri verið að lemja okkur, að skrifa undir meira samstarf.

Virðulegur forseti. Hér segir ríkisstjórnin að við eigum að standa vörð um EES-samninginn. Já, auðvitað eigum við að gera það. En hvað er íslenska ríkisstjórnin að gera? Hún er að grafa undan samningnum um Evrópska efnahagssvæðið með því að tala hann niður, með því að segja að við eigum ekki að trúa því sem við skrifuðum undir heldur þurfum við að fara í tollabandalagið og vera með það á stefnunni að fara úr samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Það þarf ekki að standa vörð um samninginn. Ég hélt að við værum hingað komin til að segja: Hvað ætlum við að gera til að svara þessari aðgerð Evrópusambandsins gagnvart okkur? En hæstv. ráðherra er, þegar við erum komin í þetta ofbeldissamband, [Hlátur í þingsal.] að reyna að finna leiðir til að giftast nú örugglega þeim aðila sem beitir ofbeldinu. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Við þurfum að standa vörð um hagsmuni Íslands og það þýðir að áherslur og stefnur hæstv. ríkisstjórnar verða að breytast í þessu máli. (Forseti hringir.) Við eigum að standa með Íslandi.