157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[15:07]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir hennar munnlegu skýrslu um þetta gríðarlega mikilvæga mál, mál sem er mikilvægt bæði fyrir okkar iðnað og framleiðslu en líka fyrir þau prinsipp sem eru undirliggjandi í EES-samstarfinu. Hafandi hlustað á ræður nokkurra hv. þingmanna þá mætti halda að viðbrögð Íslands við þessu öllu hafi einkennst af ótta og afsökunum í garð Evrópusambandsins. Ég kannast ekkert við það. Ég kannast bókstaflega ekkert við það og ætla aðeins að fara í gegnum þá hagsmunagæslu sem hefur átt sér stað og hvernig hún hefur blasað við mér sem formanni utanríkismálanefndar. Ég vil nefna það að ég hef á öllum tímum reynt að upplýsa nefndina eins mikið og hægt er um framgang þessa máls og kallað til bæði ráðherra og ráðuneyti. Til dæmis var að mínu frumkvæði haldinn fundur í utanríkismálanefnd 7. ágúst í sumar, í þingfundahléi, þegar Evrópusambandið var aðeins byrjað að sýna á spilin í þessu máli, þar sem ráðuneytið kom og skýrði frá þeim málum sem voru í gangi, líka reyndar tollamálum af hálfu Bandaríkjanna þar sem á okkur voru settir tollar með einhliða hætti. Síðan hef ég tekið þetta mál upp bæði á fundi í Varsjá, sem var fundur þingmannaráðsins þar, og á fundi þingmannaráðstefnu í Kaupmannahöfn þar sem ég talaði mjög sterkt gegn þessum áformum Evrópusambandsins og fann hvorki fyrir ótta þegar ég flutti þá ræðu né fannst mér ég vera að afsaka Evrópusambandið þegar það var gert. Ég fékk meira að segja hrós frá einum þingmanni Sjálfstæðisflokksins fyrir. Einnig í ferð sem utanríkismálanefnd fór til Vilníusar og Varsjár tók ég þetta mál upp bæði við fulltrúa ríkisstjórnar Litáens og ræddi það líka við fjölmarga pólska þingmenn og fann ég ekki fyrir neinum ótta þegar ég bryddaði upp á því máli né fannst mér ég vera að afsaka Evrópusambandið þegar ég tók það upp að fyrra bragði. Þegar forsætisráðherra Litáens kom hingað til lands og ég tók þetta mál upp við hana að fyrra bragði fann ég ekki fyrir neinum ótta þegar ég gerði það né fannst mér ég vera að afsaka Evrópusambandið, og ekki heldur þegar fulltrúar Póllands komu hingað til lands, fulltrúar Þýskalands eða annarra ríkja. Þegar ég tók málið upp á fundi ÖSE-þingsins í Istanbúl þar sem verið var að ræða viðskiptamál og skammaði þar Evrópusambandið fyrir að bregðast við með þessum hætti og vera í annan stað að gagnrýna eitthvert kaos í alþjóðaviðskiptaumhverfinu en vera síðan að beita sín nánustu bandalagsríki eða nánustu vinaþjóðum þessum aðgerðum, þá fann ég heldur ekki fyrir sérstökum ótta þegar ég flutti þá ræðu fyrir fullum sal né fannst mér ég vera að afsaka Evrópusambandið. Síðan erum við, nokkrir þingmenn, að fara til Kaupmannahafnar á COSAC-fund þar sem ég mun aftur taka upp málið og mun heldur ekki afsaka Evrópusambandið eða finna fyrir sérstökum ótta þegar ég tek það mál upp á eins stórum fundi og hugsast getur.

Hver hefur afrakstur okkar hagsmunagæslu í þessu verið? Hann hefur verið ágætur, hann hefur verið einhver. Hann hefur falist í því að sá tollfrjálsi hluti sem við höfum fengið hefur verið meiri heldur en gert var ráð fyrir í upprunalegu tillögunum. Hann hefur verið sá að það er búið að boða það að þessi ákvörðun verði endurmetin á þriggja mánaða fresti og við höfum fengið yfirlýsingar, pólitískar yfirlýsingar um að við eigum ekki von á neinu fleira. Vildum við eitthvað meira? Að sjálfsögðu. Að sjálfsögðu hefðum við einfaldlega viljað að við værum undanþegin þessum ákvörðunum eins og ef við værum innan Evrópusambandsins. Svo varð ekki en engu að síður er hinn praktíski árangur sá að hlutabréf fyrirtækja sem framleiða þessa vöru hafa hækkað og þau hafa sjálf að fyrra bragði talað um varnarsigur Íslands í málinu. En við erum auðvitað ekki sátt og ástæðan fyrir því er sú að verið er að brjóta ákveðið prinsipp; varnaraðgerðum er beitt á Ísland og Noreg sem hafa uppfyllt öll þau skilyrði, oft þungu skilyrði í loftslagsmálum sem önnur ríki á sameiginlegum markaði þurfa að uppfylla. Við erum því ekki sátt út af þessu prinsippi.

Viðbrögð Íslands hafa líka, eins og ég segi, ekki bara verið táknræn. Þau hafa falist í því að við höfum frestað undirritun á samstarfi Íslendinga og Evrópusambandsins í öryggis- og varnarmálum. Ég held að sendiherrar Íslands og Evrópusambandsins hafi verið kallaðir inn á fund utanríkisráðherra ekki einu sinni og ekki tvisvar. Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa tjáð sig um málið með mjög afdráttarlausum hætti og ég hef sjálfur talað fyrir því, og heyrt fleiri gera það, að við ættum með fullri alvöru að skoða þann möguleika að setja málið í deilufarveg innan sameiginlegu EES-nefndarinnar. Ekkert af þessu lýsir einhverjum sérstökum ótta eða afsökunartóni í garð Evrópusambandsins heldur einfaldlega þeirri staðreynd að við erum að standa vörð um íslenska hagsmuni og erum algerlega óhrædd við að gera það. Auðvitað skiptir þó máli hvaða leiðir eru farnar. Allar þessar leiðir og þessi viðbrögð sem ég nefndi eru að mínu mati eitthvað sem er bæði skynsamlegt og áhrifaríkt. Það að hætta að innleiða EES-reglugerðir sem við höfum tekið inn í EES-samninginn í gegnum sameiginlegu EES-nefndina og erum skuldbundin til að innleiða innan sex mánaða er ekkert skynsamlegt og mun ekki vekja neina eftirtekt neins staðar, eða það að fresta bókun 35 eða eitthvað svoleiðis. Þar sem ég fer og ræði við erlenda þingmenn og ráðamenn er enginn að spyrja hvernig innleiðingu og bókun 35 líður. Það er bara eitthvert mál sem varðar okkur sjálf. Það er bara mál sem varðar það hvernig við uppfyllum þennan samning sem við höfum gert. Við skulum því ekki refsa okkur sjálfum með því að neita að fara í bað. Við skulum gera eitthvað sem skiptir máli og eitthvað sem er tekið eftir.

Ég held að við eigum í þessu máli að halda áfram að berjast og sýna skynsemi og samheldni. Ég tek undir þau orð sem komu frá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni hér áðan; að það skipti máli að við séum samstiga í þessu og getum kannski aðeins lagt til hliðar, alla vega í þessari umræðu, ákveðnar deilur sem við höfum. Ég held reyndar að þegar við lítum fram hjá hinni náttúrulegu sýniþörf stjórnmálanna, þörf til þess að undirstrika sína sérstöðu, þá séum við mjög mörg sammála í grunninn. Við erum langflest sammála um að við teljum að Evrópusambandið hafi brotið sinn hluta af EES-samningnum með því að setja á okkur þessar aðgerðir. Ég held við séum sammála um það. Ég hef heldur ekki heyrt neinn tala fyrir því að við ættum út af þessu að ganga úr EES-samstarfinu, alla vega ekki opinberlega hér í salnum. Ég held við séum sammála um þessa hluti og það getur verið gott veganesti í okkar baráttu fram á við. Menn hafa auðvitað nefnt Evrópusambandið í þessu samhengi og þá hafa menn oft sagt: Sjáum hvernig Evrópusambandið kemur fram við okkur, við skulum þar af leiðandi ekki hugsa um að stíga fæti þar inn. Þar mótast afstaða fólks svolítið mikið af þeirri afstöðu sem það hefur haft fyrir fram. Ég viðurkenni það alveg. Ég er almennt á þeirri skoðun að það að maður lendi einstöku sinnum eða oftar í deilu við sínar nánustu bandalagsþjóðir sé bara eðlilegt og það er eðlilegt að það gerist eftir því sem samskiptin eru nánari. Við lendum ekki oft í deilum við Mið-Afríkulýðveldið, Kómoreyjar eða Fídjí út af því að við eigum ekki í mjög nánum samskiptum við þessar þjóðir. Við eigum aftur á móti í nánum samskiptum við Evrópusambandsríki og því er eðlilegt að við lendum endrum og eins í einhvers konar deilum við þau. Ég er og hef alltaf verið á þeirri skoðun að út af því að Evrópusambandið er pólitískt hagsmunabandalag, bandalag með þeim þjóðum sem standa okkur næst, þá ættum við að ganga þangað inn. Það tengist þessu máli ekki beint. Þetta mál snýst bara um íslenska hagsmunagæslu og þar eigum við að standa saman. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)