157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[15:15]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Virðulegi forseti. Fyrst þetta: Það eru mikil vonbrigði fyrir okkur Íslendinga og Norðmenn að vera ekki undanþegin verndaraðgerðum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna kísiljárns, sem við þekkjum almennt í umræðunni á Íslandi sem járnblendi.

Aðeins um stöðuna í stóra samhenginu: Kína framleiðir um 60% af heimsframleiðslunni á kísiljárni og stillti sína framleiðslu af fyrir um áratug þegar Kína var búið að ná markmiðum í stálframleiðslu. Járnblendi er íblöndunarefni í stálframleiðslu. Vöxturinn hefur verið mikill á Indlandi, í Brasilíu og í Kasakstan á undanförnum árum og framleiða þessi þrjú ríki í dag öðrum hvorum megin við um 20% af heimsframleiðslunni með kolum. Restin framleiðir um 20%, inni í því mengi er Evrópusambandið og Ísland og Noregur. Evrópusambandsríkin hafa einungis framleitt um 20–30% af þörfinni á eigin markaði innan Evrópusambandsins. Í fjölmiðlum hefur komið fram að markaðshlutdeild Íslands og Noregs hafi verið um 47%, sem er töluvert meira en Evrópusambandsríkin sjálf hafa framleitt. Framleiðslan hefur helst verið í þeim löndum innan Evrópusambandsins sem leiða þessar verndaraðgerðir, Frakklandi, Póllandi og Slóvakíu.

Virðulegi forseti. Í tengslum við þetta langar mig að vekja sérstaklega athygli á varnar- og öryggismálum í þessu samhengi og mikilvægi þess að vestræni heimurinn haldi áfram að framleiða og þar með talið málma. Að mínu viti er það nauðsynlegt til að tryggja samkeppnishæfni og varnar- og öryggismál Evrópu og annarra vestrænna ríkja til lengri tíma. Það er lykilatriði í þessu samhengi, í stóru myndinni. Hér er um risastórt varnar- og öryggismál að ræða. Það er mikilvægt í tengslum við varnarmálin að verja alla virðiskeðjuna, það er strategískt mikilvægt til að verja heildarhagsmuni. Í dag eru þessar virðiskeðjur, aðfangakeðjurnar, að brotna upp. Það hefur verið allt of lítið rætt um þetta í þessari umræðu þegar kemur að þessum mikilvægu þáttum. Það sem furðar mig í þessu máli er raunverulega hvað — ég hef lýst Evrópusambandinu sem tvíhöfða þurs í þessu máli. Annars vegar erum við að tala um samkeppnishæfnina og hvernig eigi að bregðast við slíku. Hins vegar erum við að tala á sama tíma um öryggis- og varnarmál í Evrópu við Norður-Atlantshafið. Það er einhvern veginn eins og það sé ekki nein heildarmynd af málinu innan sambandsins. Þessar verndaraðgerðir Evrópusambandsins, sem snúa að íslensku og norsku kísiljárni, bæta ekki samkeppnishæfni Evrópusambandsins. Aðgerðin er að veikja hana í stóru myndinni.

Sérhæfing þjóðríkja, og þá sérstaklega fyrir smáríki eins og Ísland, er mikilvæg og þá leið höfum við farið á undanförnum áratugum, að sérhæfa okkur. Íslendingar hafa byggt upp öflugan sjávarútveg, byggt upp græna orkuframleiðslu sem hefur að mestu farið í stóriðjuna; álframleiðslu, kísilmálm og kísiljárn. Það er lífsnauðsynlegt fyrir Evrópu að halda áfram að framleiða. Samkeppnishæfni álfunnar allrar er undir. Þetta er hluti af Draghi-skýrslunni frá því í fyrra um þessi mál. Í þessu samhengi hefur EES-samningurinn verið okkur Íslendingum ákaflega mikilvægur. Við erum fámenn þjóð sem byggir sína velferð og velsæld á utanríkisviðskiptum. Þessi vegferð hefur gengið vel á undanförnum áratugum. Sjávarútvegurinn var 92% af útflutningstekjum Íslendinga árið 1952 en er í dag um 20%. Við höfum byggt upp nýjar atvinnugreinar; græna stóriðju, ferðaþjónustu, nýsköpunargreinar og lyfjaframleiðslu, allt á síðustu áratugum. Ísland treystir á opin utanríkisviðskipti.

Framkoma Evrópusambandsins í þessu máli á að vera okkur Íslendingum víti til varnaðar. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta ástand sem við erum að upplifa þessi misserin og höfum verið að upplifa í þessu ferli sem hefur staðið yfir í ellefu mánuði komi ekki upp á nýjan leik. Ég held að fá okkar hafi trúað því að þetta myndi enda í þessu, enda hef ég þá trú að Evrópusambandið muni sjá að sér í þessu máli vegna þess að það eru gríðarlegir hagsmunir fyrir Evrópu líka. Það kom mér gríðarlega á óvart að Þjóðverjar hafi ekki staðið með norrænu ríkjunum og Eystrasaltsríkjunum í þessari atkvæðagreiðslu þegar þetta mál var tekið fyrir. Þýskaland, aflvél Evrópu, á allt undir nákvæmlega þessum hlutum; að tryggja aðfangakeðjuna, virðiskeðjuna, í sinni framleiðslu. Auðvitað þekkjum við að Þýskaland er aflvél Evrópu og Evrópusambandsins.

Í seinni ræðu minni hér á eftir mun ég koma aðeins inn á — ég sé að tíminn er búinn núna — það sem bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur verið að bóka um málið og vonandi einhverja fleiri punkta.