Verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir umræðuna, skýrsluna og þá miklu vinnu sem hún hefur lagt í þetta mikilvæga mál. Þessi umræða er mikilvæg, hún getur alveg verið erfið og hún getur alveg verið hávær en hún hefur einnig sýnt okkur hvað það skiptir miklu máli að Ísland standi vörð um hagsmuni sína og geri það af festu, fagmennsku og þrautseigju. Utanríkismálanefnd hefur verið upplýst um hvert skref í þessari vegferð allt þetta ár. Það er ljóst að hagsmunagæsla ráðherra ríkisstjórnarinnar og alls starfsliðs utanríkisþjónustunnar hefur verið markviss, skipulögð og stöðug. Það hefur bókstaflega verið unnið nótt sem nýtan dag að því að verja íslenska hagsmuni, tryggja lífsviðurværi fjölskyldna og forða samfélaginu frá áfalli sem hefði getað haft langvarandi áhrif. Samstarfið við Norðmenn hefur þar skipt miklu enda eru hagsmunir okkar nátengdir þeirra þegar kemur að iðnaði, hráefnum og útflutningi á þessum samkeppnismarkaði.
Virðulegi forseti. Niðurstaðan sem liggur fyrir er, hvernig sem menn reyna að túlka hana, klár varnarsigur. Hún er ekki fullkomin, hún er ekki án endanlegra áhrifa en þegar við horfum til þess hversu alvarlegt ástandið var á tímabili og hversu mikil áhrif þessir verndartollar gátu haft þá er ljóst að þetta er marktækur sigur fyrir Ísland, atvinnulífið og samfélagið á Grundartanga. Hagsmunagæslan hefur einnig skilað því að fulltrúar ESB hafa fullyrt að þetta mál sé ekki fordæmisgefandi og hefur m.a. Ursula von der Leyen fullyrt það í símtali við forsætisráðherra.
Herra forseti. Það tókst að verja störf Elkem á Íslandi. Þar starfa um 170 manns, flestir úr nærumhverfinu og fjölmargir aðrir njóta afleiddra starfa, starfsemin er fjölbreytt og krefst bæði sérhæfðrar menntunar og mikilvægrar verkþekkingar. Fyrirtækið hefur í mörg ár staðið sig vel í að mennta fólk, efla færni þess og tryggja að starfsaldur sé að meðaltali mjög hár. Þetta er ekki bara fyrirtæki, þetta er samfélagsgerð, þetta er burðarás í atvinnulífi Vesturlands og mikilvægt tannhjól í íslenskum útflutningi.
Virðulegi forseti. Við vitum líka hvaða áhrif þessi staða hefði haft ef illa hefði tekist til. Við sjáum hversu erfið óvissan hjá Norðuráli á Grundartanga er og getur haft mikil og langvarandi áhrif ef ekki tekst vel til með úrvinnslu þar. Við vonum að hægt verði að leysa þau mál hið fyrsta og koma þeirri starfsemi aftur í fullan kraft. Óvissan hefur áhrif langt út fyrir fyrirtækið. Í ljósi þess hefði það verið gríðarlegt högg ef ekki hefði tekist að verja störf starfsfólks Elkem. Fyrir íslenskt efnahagslíf var þetta mikilvægt en fyrir starfsmennina sjálfa, fyrir fjölskyldur þeirra, heimilin sem reiða á þessi störf, þá skiptir þetta bókstaflega öllu máli. Þarna var ekki verið að verja línur í bókhaldi. Þarna var verið að verja lífsviðurværi fólks. Tilgangur aðgerða ESB er að hækka verð á járnblendinu og mun sú hækkun skila sér til Elkem einnig. Það að hlutabréf móðurfyrirtækisins hækkuðu á mörkuðum eftir að ákvörðun var tilkynnt sýnir trú fjárfesta á því að þetta muni ekki hafa veruleg áhrif.
Það er mikilvægt, virðulegi forseti, að við gleymum því ekki í þessari umræðu að þetta snýst ekki bara um EES-samninginn eða tæknilegar reglugerðir eða um aðferðir framkvæmdastjórnar ESB. Þetta snýst um mannlíf, um störf, um samfélög, um framtíð byggða sem hafa alla tíð verið burðarásar í íslensku atvinnulífi. Þar skiptir miklu máli hvernig við stöndum vörð um atvinnuöryggi og samkeppnishæfni, þar skiptir máli hvernig við nýtum EES-samninginn til að tryggja jafnræði og réttlæti og þar skiptir máli að við látum ekki beygja okkur þegar við erum í rétti.
Sveitarfélögin á starfssvæði Elkem hefðu fengið þungan skell ef illa hefði farið. Skattspor fyrirtækisins er stórt en það sem skiptir ekki síður máli eru öll þau afleiddu störf og þjónusta sem veltur á því að stór og öflug verksmiðja starfi af fullum krafti. Hér eru verkefni, tekjur, þjónusta og samfélagsleg virkni sem hefði allt verið í uppnámi. Í því ljósi er niðurstaðan ekki aðeins hagsmunasigur heldur einnig mikilvæg skilaboð til íslensks atvinnulífs. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun verja hagsmuni atvinnulífsins af festu og raunsæi í því tollastríði sem geisar í heiminum. Við þurfum því áfram að standa vörð, ekki aðeins í þessu máli heldur öllum málum þar sem íslenskt atvinnulíf og atvinnufrelsi er í húfi.
Ég vil því sérstaklega hrósa utanríkisráðherra og öllu hennar frábæra fólki í utanríkisþjónustunni. Þau hafa sýnt fagmennsku, úthald og samhæfingu sem skilar árangri. Þessi samvinna við Noreg og þessi hagsmunagæsla varð ekki til í tómarúmi. Hún byggðist á trausti, á skýrum skilaboðum og á því að Ísland var tilbúið að leggja sitt af mörkum til að stöðva ósanngjarna meðferð á íslensku fyrirtæki. Ég vil líka hrósa forstjóra Elkem á Íslandi og starfsmönnum fyrirtækisins. Þau hafa sýnt seiglu, sýnt þrautseigju og jafnframt haft trú á því að hægt væri að vinna málið með málefnalegum rökum og sterkum staðreyndum.
Virðulegi forseti. Nú þurfum við að horfa fram á veginn. Við þurfum að tryggja að réttur Íslands samkvæmt EES-samningnum sé virtur. Við þurfum að halda áfram að hamra á jafnræði á innri markaði, tryggja að ekki sé beitt verndartækjum sem ganga gegn grundvallarreglum samningsins og að íslensk fyrirtæki geti starfað á sínum mikilvægasta markaði án hindrana, án mismununar og án pólitísks eða efnahagslegs bakslags sem byggir á röngum forsendum. Það snýr einnig að okkur hér á Alþingi. Við þurfum að vera áfram vönduð í innleiðingu reglugerða og tryggja að EES-samningnum sé haldið á lofti og við vinnum eftir sömu faglegu viðmiðunum og við gerum kröfu um frá öðrum. Með því styrkjum við neytendavernd, réttindi borgaranna og samkeppnishæfni atvinnulífsins. Þetta bakslag, þó að okkur hafi tekist að milda það, má ekki stoppa okkur. Það má ekki valda því að traust til innri markaðarins veikist. Það má ekki valda því að fyrirtæki sem vilja fjárfesta á Íslandi hugsi sig tvisvar um. Þau verða að geta treyst því að við munum standa áfram vörð um hagsmuni atvinnulífsins á Íslandi.
Virðulegi forseti. Við eigum öflugt atvinnulíf, við eigum öflugan iðnað og við eigum ótrúlega seigt fólk sem vinnur hörðum höndum að því að skapa verðmæti fyrir samfélagið allt. Það er okkar verkefni að verja þetta fólk.
Virðulegi forseti. Ég læt hér staðar numið en ég vil ítreka þakkir mínar til ráðherra, til starfsfólks utanríkisþjónustunnar, til Elkem og allra þeirra sem hafa lagt sitt af mörkum til að verja störf, verja samfélagið og verja hagsmuni Íslands. Nú heldur vinnan áfram og hún mun byggjast á festu, fagmennsku og samstöðu um þetta mál sem getur sýnt okkur hvað við þurfum til að ná árangri.