Verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir áhugaverðar og um margt góðar umræður hér. Ég vil draga fram að það sem ég ætla alla vega að taka úr þessu er að EES-samningurinn er langmikilvægasti viðskiptasamningur okkar Íslendinga. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að standa vörð um þann samning. Allt sem við höfum gert fram til þessa til að efla samstarf okkar og samvinnu við samstarfsríki innan ESB er gert á forsendum Íslands og vegna íslenskra hagsmuna. Ég undirstrika það aldrei nógu oft. Það er fagnaðarefni að mjög mörg okkar, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, séu nákvæmlega þar. Ég vil þakka m.a. Framsóknarflokknum fyrir málefnaleg innlegg. Við erum ósammála um ýmsa hluti en við erum sammála um að standa vörð um þennan samning, standa vörð um íslenska hagsmuni. Um það snýst þetta mál.
Varðandi Evrópusambandið þá er það kapítuli út af fyrir sig að greina Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn, sem eru smeykir við það að treysta þjóðinni, því að á endanum snýst málið um að þjóðin fái að ráða þessu. Við tökum þá umræðu síðar.
Góð og trygg samskipti þola það að tekist sé á. Þau þola að líkt þenkjandi ríki takist á um, eins og í þessu máli, ákveðin grundvallarprinsipp sem við vorum ekki sammála nálguninni á. Við tókum þann slag. Við tókum nákvæmlega þann slag og við höfum tekið svona slag fyrr á árinu. Við náðum framgangi í stálinu. Í þessu misstum við aðeins af grundvallarprinsippunum en við stóðum vörð um hagsmuni fyrirtækisins hér heima.
Það eru 15 sekúndur eftir og ég ætlaði að svara nokkrum í stjórnarandstöðunni. Það er alveg ljóst að það þarf að brydda upp á fleiri þáttum. Sumir í stjórnarandstöðunni hafa talað hreint út. Ég les formann Miðflokksins þannig að á endanum vilji hann bara gefast upp á EES-samningnum. Varðandi Sjálfstæðisflokkinn, sem var svolítið tvítóna í allri þessari umræðu, þá er ljóst að mínu mati (Forseti hringir.) að það er himinn og haf á milli málflutnings Miðflokksins og hluta Sjálfstæðisflokksins og síðan atvinnulífsins sem við funduðum með, m.a. í gær, þar sem þau sögðu alveg skýrt (Forseti hringir.) að það væri verið að gæta hagsmuna okkar verulega. Við þurfum að standa vörð um EES-samninginn. Þangað verðum við að fara og ég hvet Sjálfstæðisflokkinn og vil hvetja Miðflokkinn líka að vera með okkur, (Forseti hringir.) bæði ríkisstjórninni og fleirum úr stjórnarandstöðunni, í því að verja hagsmuni íslensks atvinnulífs. Út á það gengur þetta og við erum hvergi nærri hætt. (Forseti hringir.) Við Skagamenn, sem m.a. ályktuðu, og Elkem vil ég segja: Við höldum áfram þessari baráttu.