157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fyrirkomulag umræðu um skýrslu utanríkisráðherra.

[16:09]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem átti sér stað um eitt af mikilvægustu málum okkar Íslendinga um þessar mundir og að mörgu leyti bara góða og málefnalega umræðu, að mörgu leyti, ekki öllu.

Virðulegur forseti. Fyrst og fremst langar mig að mótmæla því að það sé verið að semja sérstaklega um þessa umræðu og setja hana í einhvern annan pakka en þingsköp okkar gera ráð fyrir. Við eigum bara ágætisþingskapalög sem gera ráð fyrir því að hægt sé að mæla fyrir skýrslum og að þingmenn geti tekið þátt í umræðunni. Það hefði t.d. verið nauðsynlegt í þessari umræðu hér áðan, sérstaklega þegar hv. þm. Dagur B. Eggertsson fór og eyddi sinni ræðu í það að reyna að lesa mismunandi út úr því hvað fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sögðu eða þegar hæstv. utanríkisráðherra kemur hér upp og lokar umræðunni þegar það hefði bara vel farið á því að geta nýtt þingsköpin og farið í andsvör. Ég hygg að það hefði bæði verið gagnlegra fyrir þingheim og hæstv. ráðherra, sem þarf að fá skýr skilaboð, en ekki síður hefði það verið miklu skemmtilegra og þá er kannski möguleiki á að fólk hérna úti og fréttamenn hefðu sýnt áhuga á þessari mikilvægu umræðu sem átti sér stað hér í dag en mér sýnist það almennt ekki hafa verið.

Virðulegur forseti. Ég ítreka þetta enn og aftur, ég hef sagt þetta áður og ég vil að þessu sé komið áleiðis: Það er engin þörf á að semja um þessa umræðu, notum bara þingsköpin, þá væri þetta bara mjög góð og gagnleg umræða fyrir alla.