157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fyrirkomulag umræðu um skýrslu utanríkisráðherra.

[16:11]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég vil eiginlega koma hingað upp og taka undir með hv. þingmanni. Ég held að það hefði nefnilega verið mjög gagnlegt að vera með svolítið stóra og breiða umræðu um þetta, takast á og ræða ýmislegt sem hefur verið rætt og sagt í aðdragandanum að þessu mikilvæga máli. Ég vil bara hvetja forseta til að skoða það hvaða efni er undir hverju sinni í sérstakri skýrslu.

Auðvitað er freistandi fyrir mig — ég var búin að skrifa hjá mér m.a. að í aðdragandanum var Evrópusambandið kallað glæpasamtök af hálfu forystu Sjálfstæðisflokksins sem núna lúta forystu Danmerkur. Það var verið að segja að við ættum að neita að innleiða, við ættum að bíða með alls konar gerðir og fresta bókun 35. Allt er þetta gert til þess að draga úr virkni EES-samningsins og þetta hefði ég gjarnan viljað ræða. En það gerist ekki nema með meiri tíma og meira svigrúmi fyrir þingheim allan þannig að við getum á endanum tekist raunverulega á um það. Ég bind þó vonir við það eftir þennan dag að við stöndum öll vörð um íslenska hagsmuni (Forseti hringir.) þótt við séum með mismunandi nálgun á aðferðafræðinni.