fyrirkomulag umræðu um skýrslu utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og tek eftir því að hæstv. utanríkisráðherra tekur líka undir og vill fá meiri umræðu um þetta til að ræða ýmis mál sem þessu tengjast. Við getum bara gert það. Ég get ekki skilið það öðruvísi en að hæstv. ráðherra vilji taka þessa umræðu og þá skulum við gera það. Hæstv. ráðherra þarf auðvitað að svara fyrir það af hverju hún er ávallt að afsaka Evrópusambandið með einhverjum hætti, eins og hún gerði áðan með frægum hætti, af því að það verður frægt að hæstv. utanríkisráðherra í þessu máli byrjaði á því að vitna í Gro Harlem Brundtland sem sagði þegar við gengum frá EES-samningnum, sá ESB-sinni sem klauf norsku þjóðina, að það væri miklu betra að vera í tollabandalaginu.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en skilið það svo — því að ekki eru nú málin að koma frá ríkisstjórninni, það er ekkert að þvælast fyrir okkur — hæstv. utanríkisráðherra er búin að lýsa því hérna yfir að hún vilji taka meiri umræðu um þessi mál og ég get ekki séð annað en að það þýði (Forseti hringir.) að við munum setja þetta á dagskrá. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi þá notum við þingskapalögin og ræðum þetta af því að þetta mál er ekki tæmt.