kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Það voru greidd atkvæði um þetta mál eftir 2. umræðu í gær þar sem ég hafði dregið til baka breytingartillögu mína í ljósi þess að hv. þm. Víðir Reynisson, sem jafnframt er formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar, lofaði mér því að mál mitt sama efnis og breytingartillagan laut að myndi fá umfjöllun í nefndinni og vera skilað inn í þingsal til 2. umræðu. Ég er því bara ánægð með þau málalok að ég fái að mæla fyrir því máli á eftir, sem sérstakur erindreki dauðans hér meðal þingmanna; þessu mikilvæga máli sem sjaldan fær umræðu í þingsal. Ég verð bara að fagna því hversu oft sú umræða hefur átt sér stað núna á síðustu vikum.