157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:16]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegur forseti. Hér í 3. umræðu sé ég mig knúinn til að taka til máls þar sem hér eru miklar breytingar í farvatninu, breytingar sem eru ekki framhaldsskólunum til góða. Maður ætti kannski ekki að segja allar breytingarnar, sumar breytingar í þessu frumvarpi eru ágætar, en tvær veigamiklar breytingar eru þess eðlis að þær koma til með að skaða hagsmuni nemenda og minnka námsárangur í skólum.

Í 13. gr. frumvarpsins er lagt til að námsárangur verði ekki lengur frumforsenda innritunar framhaldsskólanna, námsárangur verði ekki frumforsenda. Þetta felur í sér afnám gagnsæis, skerðingu á jafnræði og gengisfellingu á því sem við eigum að leggja mest upp úr, sem er þekking og færni. Nemendur í grunnskóla fá nú þau skilaboð að námsárangur sé ekki endilega það sem þeir þurfa að treysta á til að komast þangað sem þeir vilja og eiga sem flestar leiðir upp úr grunnskólunum heldur eru það alls konar aðrar breytur sem geta komið inn í sem þeir hafa ekkert endilega mikil áhrif á. Ef það er ekki þessi hvati til að standa sig í náminu, til að geta opnað leið inn á brautir framhaldsskólanna — það er sérstök pólitík að fara í þá áttina. Þegar óskilgreind huglæg atriði fá meira vægi en mælanlegur námsárangur þá hættum við að vita á hverju inntaka í framhaldsskóla byggist og jafnræði er hent út um gluggann. Við erum þegar með töluvert ójafnræði við lok grunnskóla eins og ítrekað hefur komið fram og bara á síðasta barnaþingi kvörtuðu nemendur í grunnskólunum mikið yfir því að einkunnir úr skólunum væru ekki sambærilegar og það væri verið að kenna alls konar ólík atriði í skólunum og erfiðleikastig skólanna væri ólíkt þegar þau bæru sig saman við nemendur í öðrum skólum. Hérna er verið að fara inn í framhaldsskólana líka og koma þessu á þar að ákveðnu leyti.

Hlutlægum mælikvörðum er slaufað og huglægir taka við. Þetta einkennir t.d. námsmatskerfi grunnskólanna sem foreldrar um allt land hafa nú óað og æjað yfir, skilja það illa. Huglægt mat heldur innreið sína í stað hlutlægs. Sérkenni og sérstaða skólanna er í hættu og veruleg hætta á að skólarnir verði einsleitir og sérhæfing framhaldsskólanna minnki. Ef framhaldsskólarnir ná ekki að sérhæfa sig þá er augljóst mál að sérhæfing starfsmannanna minnkar um leið. Ef þeir eru allir steyptir í svipað eða sama mót verður erfitt fyrir starfsmenn að sérhæfa sig.

Virðulegi forseti. Við vitum líka að íslenskt menntakerfi á undir högg að sækja þegar kemur að námsárangri og færni. Það kemur ítrekað fram í alþjóðlegum rannsóknum og hefur höggvist í þennan árangur árum saman og þess vegna er óskiljanlegt að ríkisstjórnin sé að taka þessi skref. Niðurstöður alþjóðlegra prófa hafa sýnt ítrekað að við stöndum höllum fæti þegar kemur að lestri, stærðfræði og raunvísindum. Í þeirri stöðu ættum við ekki að draga úr vægi námsárangurs heldur einmitt að styrkja það vægi. Við eigum að hvetja til aukins námsárangurs og sá árangur, að standa sig vel í námi í ólíkum skólum, næst með því að nemendur viti að mikill árangur hleypi þeim þangað sem þeir vilja komast.

Í dag eru ákveðnir skólar þekktir fyrir ákveðin einkenni og sérstöðu og að sjálfsögðu sækir sá mannauður, kennararnir og starfsmenn, í þá skóla því þeir hafa einhvers konar sérstöðu, hver sem hún er, iðnir eða annað, og þannig myndast ákveðin sérhæfing og það verður ákveðinn fjölbreytileiki í framhaldsskólanum sem slíkum. Ef við fletjum út einkenni framhaldsskólanna þá glötum við einum af styrkleikum þeirra. Hvati þeirra til að þróa sérhæft nám veikist og sértækur mannauður dreifist of mikið. Viljum við raunverulega að allir framhaldsskólar verði svo gott sem eins og sérstöðu og sérhæfingu sé hent út um gluggann?

Herra forseti. Þess vegna legg ég til að í stað 13. gr. frumvarpsins komi 32. gr. gildandi laga en sú grein er einmitt góð og veitir skólum allt það frelsi sem þeir þurfa til að geta myndað sér sérstöðu og búið til inngönguskilyrði sem lúta að því að námsárangur sé í forgrunni. Jafnframt á hver framhaldsskóli að bera ábyrgð á innritun. Það á ekki að flokka þá alla í sams konar mót. Það var fróðlegt í allsherjar- og menntamálanefnd að hitta ungt fólk sem kom fyrir nefndina. Það er annaðhvort í framhaldsskóla eða hefur nýlokið framhaldsskóla. Þeirra sýn á skólalífið og líf ungmenna er að mínu mati mun heilbrigðari en sú sýn sem birtist í þessu frumvarpi. Ungmennin vildu að það yrði tekið á jafnræði í grunnskólanum þannig að tækifæri barna eftir það skólastig, sem nemendur eru skyldaðir til að vera á, sem er grunnskólinn, væru eins jöfn og kostur væri á. Þá þarf ekki neina kvóta inn í framhaldsskólana eins og þetta frumvarp boðar. Það þarf enga kvóta. En í stað þess að ráðast að vandanum og laga það sem þarf að laga í grunnskólunum þá reyna menn að stytta sér leið og búa til kvóta fyrir framhaldsskóla. Það er ekki góð leið því eins og sagt var í nefndinni hjá okkur væru kvótar þess eðlis að þá er einhverjum hleypt inn á kostnað annarra. Það ættu í raun allir að hafa jöfn tækifæri. Ungmennin töluðu um að það ætti að ráðast að rót vandans og ekki gera inntökuna huglæga og ógagnsæja því það bitnaði á nemendum sem vita ekki hvað trompar annað í inntökunni. Þetta er 13. gr. sem er því miður ekki góð.

Svo er það 14. gr. Það er ekki síður ástæða til að hafa áhyggjur af henni. Þar er verið að reyna að lögfesta ítarlegar reglur um skólabrag, ferla og rétt nemenda til að andmæla. Greinin felur í rauninni í sér skerðingu á rétti nemenda og foreldra. Hún býr til falskt öryggi, eins konar skrifræðislegt net sem færir ábyrgðina frá valdhöfum framhaldsskólanna yfir á nemendur sem flestir eru börn. Flestir nemendur framhaldsskólanna eru börn. Þetta er ákveðin sjálfvirkni. Það er búið til eitthvert reglugerðarfargan sem útvistar ábyrgð fullorðinna fagmanna til barna og foreldra þeirra. Umboðsmaður barna hefur goldið mikinn varhuga við þessari grein og það er kannski ekki tilviljun að umboðsmaður barna láti sig þetta varða því þarna er verið að varpa ábyrgð fullorðinna yfir á börn og óskiljanlegt í rauninni að þessu hafi ekki verið breytt almennilega í meðförum nefndarinnar. Núgildandi lög taka einmitt vel á þessum þætti, lögin sem eru í gildi núna. Þar segir að skólar skuli setja sér reglur um skólabrag og viðurlög og valdhafar skóla beri ábyrgð á því að þær reglur séu skýrar og sanngjarnar. Þetta er algerlega skýrt. Þetta er góð lagagrein og hana eigum við að nota en ekki kasta henni á haugana.

Kastljósið ætti að mínu mati sem skólamaður, búinn að vera tæpa þrjá áratugi í skóla, að beinast að fyrirbyggjandi þáttum sem má finna í 33. gr. gildandi laga. Það að lögfesta með þeim hætti sem gert er í frumvarpinu núna, nákvæmlega einhverjar leiðir og ferla fyrir börn sem misstíga sig, er eitthvað sem lög eiga ekki að gera. Frumvarpsdrögin þynna núgildandi lög, 33. gr. b, þ.e. um skólabraginn, þegar búið er að ferla nemendur í hólf og minnka áherslu og ábyrgð þeirra sem óhjákvæmilega sinna fyrirbyggjandi aðgerðum, sem er miður.

Herra forseti. Þegar við setjum lög sem snerta börn og ungmenni eigum við að gæta þess að lögin séu ekki íþyngjandi en 14. gr. frumvarpsins er einmitt íþyngjandi fyrir börn. Hún eykur vald starfsmanna framhaldsskólanna en dregur úr rétti og rými nemenda. Ef þetta frumvarp verður að lögum getur fjöldi barna sem þessi grein, 14. gr., nær yfir margfaldast án þess að réttindi þeirra aukist nokkuð á móti. Það er ekkert talað um réttindi barna í 14. gr. Þetta er bara vald skólanna og það eru ákveðnir ferlar sem fara í gang. Það vantar ákveðna mannlega vídd inn í þetta því að við setjum hvorki börn né ungmenni inn í excel-skjal. Í 14. gr., sem fjallar um 33. gr. a í gildandi lögum, um ábyrgð nemenda, kemur viðbót sem er mjög sérstök. En ef ég, með leyfi forseta, vitna bara í núgildandi lög þá segir þar:

„Öllum aðilum skólasamfélagsins ber að leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að og viðhalda góðum starfsanda og jákvæðum skólabrag. […]

Hver skóli skal setja sér skólareglur og birta þær í skólanámskrá. Í reglunum skal m.a. kveðið á um hegðun og almenna umgengni, samskipti, heilbrigðar lífsvenjur, skólasókn, námsframvindu, meðferð ágreiningsmála og beitingu viðurlaga.

Framhaldsskólar skulu hafa heildstæða stefnu um það hvernig fyrirbyggja eigi að líkamlegt, andlegt eða félagslegt ofbeldi eigi sér stað í skólastarfi.“

Þarna er ábyrgðin á skólanum. Þarna liggur ábyrgðin hjá þeim að búa til góðan skólabrag, að nemendur vilji hegða sér eins og skólabragurinn kveður á um. Skólabragur er ekki eitthvað sem er beint áþreifanlegt, það er heldur stemning sem er í skólanum sem kallar fram góða hegðun og viðhorf nemenda. Ef þú ætlar að regluvæða eitthvað og setja það upp á vegg þá skaparðu miklu verra andrúmsloft og menn reyna að finna leiðir fram hjá reglunum. Við þekkjum það að reglur stoppa ekkert endilega vonda hegðun. Það kom t.d. fram í 1. umræðu hér um þetta frumvarp að fleiri hundruð börn á grunnskólaaldri hafi verið þvinguð til kynferðismaka. Það er bannað með lögum. Þetta gerist samt. Þarna þurfum við að vinna að ákveðnum grunnþætti, að þessi brot eigi sér ekki stað. Það er menning, viðhorf og bragur sem þarf að vinna með en ekki að skella einhverjum reglum á, tikka í box og segja: Þetta er allt komið. Menn eru að reyna að stytta sér leið í því sem er óhjákvæmilegt að gera; að breyta hegðun og viðhorfum. Þeir sem hafa ekki unnið með þessum hópi, börnum og unglingum, átta sig kannski ekki á þessu og halda að það sé bara nóg að setja reglur. En það er ekki einu sinni hægt að setja reglur um fullorðið fólk því það heldur líka áfram að brjóta af sér, og hvað þá ólögráða börn.

Það að við séum að ferla börn og setja þessar reglur inn í 14. gr. er, eins og umboðsmaður barna hefur bent á, ekki maklegt. Það er verið að varpa ábyrgð yfir á börn sem fullorðnir eiga að bera og það er þeirra í skólunum, sem eru fullorðnir fagmenn, að búa til þennan skólabrag sem veldur því að nemendum finnst þeir velkomnir í skólann, hver sem er. Þeir eru ekki líklegir til að brjóta af sér af því að þeim þykir vænt um skólann sinn, af því að þeir eru í samstarfi við skólann sinn en ekki af því að það séu reglur í lögum sem segja að þeir eigi ekki að brjóta af sér. Það er hugsunin sem er því miður í frumvarpinu. Það er verið að hverfa frá hinni hugsuninni, að búa til góðan skólabrag sem virkar síðan út allt lífið, því góða hegðun og góð viðhorf á fólk allt lífið. Það skiptir því miklu máli að þetta komist einhvern veginn inn í umræðuna. Það er freistandi að negla niður einhverjar reglur og segja bara að málið sé útkljáð þannig. Það er freistandi en er ákveðin leið til að pissa í skóinn sinn, það er aðeins heitt fyrst en svo frýs það og þá er það óþægilegt, þegar árangurinn skilar sér ekki.

Lykillinn að því að farið sé eftir almennum reglum samfélagsins er að slík menning sé sköpuð eða skólabragur. Við þekkjum það bara að ákveðin þjóðríki eru líklegri til að fylgja einhverjum reglum og gera slíkt vegna þess að það er ákveðin menning, ákveðin viðhorf í samfélaginu. Svo eru önnur samfélög sem eru andstæð, þar skiptir engu máli hversu miklar reglur menn setja, alltaf verða þær brotnar. Áherslan er á skökkum stað í þessu frumvarpi þrátt fyrir að það sé fullt af góðum greinum í því. Miklu meira ætti að gera úr góðum skólabrag og leita allra leiða til að styrkja jákvæða og uppbyggilega hegðun frekar en að banna hitt og þetta. Rannsóknir sýna margar að lykillinn að góðu skólastarfi er einmitt góð skólamenning og góður skólabragur, þar sem allir skipta máli í skólanum. Menn geta ekki vikið sér undan því og bent bara á reglur: Tölvan segir að þetta sé svona. Þetta er því miður andinn í þeim greinum sem ég gagnrýni hér. Fullorðið fólk er að varpa af sér ábyrgð (Forseti hringir.) í stað þess að taka málin föstum tökum og mynda þennan skólabrag og skólamenningu sem er að finna í gildandi lögum. Það er í raun verið að skemma fyrir með þessu frumvarpi (Forseti hringir.) þrátt fyrir að hluti þess sé góður.