framhaldsskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans góðu ræðu hér. Hún hefur vakið hjá mér ýmsar spurningar, eins og t.d. þegar er verið að tala um að frumforsendan sé sú að það eigi ekki lengur að líta eingöngu til einkunna. Ég hef skilið það þannig. Hv. þingmaður nefnir oft jöfnuð og að allir skipti máli og hann segir líka að hlutirnir eigi ekki að vera íþyngjandi gagnvart nemendum. Ég hafði skilið það svo að hér værum við að reyna að koma í veg fyrir að fatlað fólk og seinfærir nemendur yrðu settir til hliðar af því að þeir væru ekki að skora nógu hátt þegar þeir útskrifast úr grunnskólanum sínum, að þeir myndu óneitanlega verða settir til hliðar af því að þeir væru kannski bara með meðaleinkunn upp á sjö eða sex á meðan aðrir nemendur, þar sem eingöngu væri verið að líta til hárra einkunna, myndu njóta algerra forréttinda hvað það varðaði.
Þannig að ég spyr hv. þingmann: Er þetta rangt skilið hjá mér? Er ekki verið að koma með tilhneigingu hér inn með þessu frumvarpi til að gera nákvæmlega það sem hv. þingmaður er að benda á? Að vera í rauninni að segja: Hér skipta allir nemendur máli, hér ætlum við að taka tillit til seinfærra og fatlaðra nemenda og koma í veg fyrir það að þau séu alltaf jaðarsett og fái ekki tækifæri til að koma inn í skólakerfið okkar. Er þetta ekki stærsti liðurinn í því sem er það sem við erum að tala um, í jöfnuði? Svona skildi ég þetta og ég spyr því hv. þingmann: Er ég bara að misskilja þetta algjörlega frá A til Ö?