framhaldsskólar.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir mjög gott andsvar. Það er gott að geta rætt um þetta hér. Staðan er sú að til að koma til móts við fólk, við erum öll ólík, þá þarf ákveðna sérhæfingu. Það er ekki verið að jaðarsetja einn né neinn. Skólarnir í dag eru að mörgu leyti búnir að sérhæfa sig. Það eru ákveðnir skólar sem geta tekið við, eru með þá sérfræðiþekkingu á því sviði, og koma betur til móts við hvern sem er, hvort sem hann er fatlaður eða afburðagáfaðir — fatlaðir geta náttúrlega verið afburðagáfaðir, það er hægt að sameina þetta tvennt. Skólarnir eru með sérhæfingu og ég er akkúrat sammála hæstv. ráðherra í því að auðvitað eiga menn að hafa jöfn tækifæri og þau eiga að birtast eftir að menn koma úr grunnskólunum. En það sem þetta frumvarp gengur akkúrat út á — framhaldsskólarnir eru að verða einsleitari, þeir verða allir líkari af því að menn eiga allir að, eins og stendur í greinargerðinni, bera ábyrgð á fjölbreytileikanum. Þá verður sérhæfingin minni, hvort sem þú ert að fara í einhvers konar langt bóklegt nám eða iðnnám eða hitt og þetta. Þetta er svona misskilin góðmennska; í stað þess að sérhæfingin sé til staðar fyrir alla, hverjir sem þeir eru, er verið að smyrja henni út um allt. Það er sem sagt pólitíski punkturinn í frumvarpinu, því miður. Það sem hefur í raun gert framhaldsskólana einstaka hér er að þeir eru ólíkir. Hver sem maður er getur maður sótt í þann framhaldsskóla þar sem mannauðurinn hentar manni, sumt hentar mér meðan annað hentar hv. þingmönnum hér úti í sal. Frumvarpið vinnur í raun, að mínu mati, gegn því sem hæstv. ráðherra er að tala um.