framhaldsskólar.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég hef í mínum störfum sem félags- og húsnæðismálaráðherra fengið inn á borð til mín ýmsa gesti, bæði frá Þroskahjálp og mjög mikið af fötluðu fólki, eðli málsins samkvæmt. Ég hef þurft að taka utan um grátandi ungmenni sem var hafnað skólavist. Ég vil trúa því í alvöru talað að með þessu frumvarpi, eins og það er lagt fram, þessari 12. gr. og öðru, séum við í góðri trú að reyna einmitt að taka utan um þau ungmenni vegna þess að við höfum takmörkuð gæði núna. Loksins held ég að það hafi gerst í haust að engum nemanda hafi verið í rauninni meinuð skólavist en við höfum séð það áður. Sú staða hefur komið upp eins og ég efast ekki um að hv. þingmaður þekki það og hefur örugglega verið miður sín yfir því. Það er ekkert verra heldur en að þurfa að horfast í augu við það að við getum ekki tekið utan um öll ungmennin okkar og veitt þeim þá þjónustu sem þarfir þeirra krefjast. Ég vildi halda því fram núna a.m.k. að við séum að reyna að gera allt til þess að aðgreina ekki fatlað fólk, og þá er ég ekki að tala um fatlað fólk sem er fatlað og einhverjir snillingar sem væru hvort sem er að útskrifast með níu og tíu og við þyrftum ekki að velta okkur upp úr því, heldur hina sem eru seinfærir og eru að biðja um tækifæri. Þá hefði ég haldið að þetta úrræði þar sem er hreinlega tekið fram að við frumskoðun sé ekki eingöngu farið eftir því að vera með forgang hjá þeim sem eru að skora hæst. Auðvitað skil ég hvað hv. þingmaður segir að það lærist náttúrlega og kemur inni í reynslu skólastjórnenda hvernig sé best að koma til móts við nemendurna. En ég veit það ekki. Ég hef því miður ekki haft tíma og tök á því að fylgjast með umræðunni nema svona á handahlaupum. En mér þykir hins vegar vænt um að hafa fengið að hlusta á hv. þingmann hvað þetta varðar. Ég skil hans ástríðu alveg fullkomlega hvað lýtur að þessum málaflokki. Ég held að við séum öll innst inni að reyna að gera okkar besta. Best af öllu er ef við getum virkilega hjálpast að og gert alla hluti eins frábæra og þeir mögulega geta orðið með okkur öll innanborðs.