157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:38]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég heyri að ráðherrann og ég erum sammála um þetta en það er ákveðinn misskilningur í gangi í þessu máli sem því miður hefur fengið að ganga í gegnum alla umræðuna og það er gott að fá hæstv. ráðherra í þetta spjall. Hvaða skólar eru einhvern veginn bestir? Vitum við það? Við getum skoðað skóla, ég ætla ekki að nefna þá á nafn, en það eru skólar sem eru ekki jafn vinsælir og aðrir. Ef þú skoðar hvaða árangri þeir ná með nemendum er miklu meiri árangur en með nemendum sem eru kannski í vinsælustu skólunum. Það er mjög umdeilanlegt hvaða skólar eru bestir. Þetta frumvarp er svona ákveðin misskilin góðmennska í því, og ég átta mig alveg á því út á hvað það á að ganga, en þarna er verið að minnka sérhæfingu og það verður verr komið til móts við alla nemendur, óháð því hvort þeir eru fatlaðir, seinfærir, klárir eða milliklárir eða hvað sem er.

Því miður hefur þetta verið svolítið keyrt áfram í einhverri pólitískri blindni að mínu mati. Þetta er reyndar ekki mál frá Flokki fólksins. Þetta er mál sem Flokkur fólksins erfði frá síðustu ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn, sem ég stend fyrir, var í. Ég hefði bara viljað fá hæstv. ráðherra fyrr inn í umræðuna af því að ég held að hæstv. ráðherra — auðvitað eru allir á því að við viljum koma til móts við sem allra flesta. En það er búið að reyna þetta, það er búið að reyna þetta í Bandaríkjunum, búið að reyna þetta víðar, þar sem er verið að búa til þessa kvóta og verið að gera hluti sem á endanum gengisfella alla. Það er bara ekki gott. Til að ná árangri — við sjáum það t.d. bara í grunnskólum, þar eru einhverfudeildir. Er það vont? Er það vont að hafa sértækan mannauð fyrir þau börn? Ég hef séð að svarið er nei. Við þurfum að geta haft sértæka þjónustu fyrir þá sem þurfa á henni að halda (Forseti hringir.) en ekki að smyrja henni úti um allt þannig að það verði í raun engin þjónusta á endanum. Það er það sem þetta frumvarp gengur út á.