fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og fyrir að koma loksins fram með þetta mál. Eins og hæstv. ráðherra er kunnugt um þá skapaðist töluverð umræða um þetta á síðasta vorþingi og var þetta eitt af því sem hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir nefndi í stefnuræðu sinni að ætti að gera og var þá mars nefndur. Nú er kominn nóvember og þetta mál er hér fram komið. Mig langar fyrst og fremst að spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju var það ekki komið fram fyrr? Því var lofað í stefnuræðu forsætisráðherra í mars síðastliðnum og meirihlutaflokkarnir felldu breytingartillögu sem sneri að nákvæmlega þessum atriðum og var lögð fram við 1. umræðu í sambærilegu máli, um breytingar á Fæðingarorlofssjóði, síðasta vor. Þannig að fyrsta spurningin er: Af hverju var þetta mál ekki komið fram fyrr? Það lá alltaf fyrir að þetta myndi taka gildi 1. janúar eða hafa áhrif á þá sem myndu eignast börn eftir þann tíma, er það ekki? Hér sé ég að fjárhagslega matið er um 480 millj. kr. vegna þessara breytinga, fannst peningurinn ekki fyrr en núna með haustinu? Var ríkisstjórninni ekki ljóst hver kostnaðurinn yrði við þessar breytingar sem þau höfðu þó boðað í sinni stefnuræðu? Ég tek líka eftir því að málið hafði ratað inn á samráðsgátt stjórnvalda 10. október síðastliðinn en við vorum að ræða þetta hérna í júní, þannig að stóra spurningin mín er bara: Af hverju var þetta ekki komið fyrr?