fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og hef alveg skilning á því og mikilvægi þess að aðgerðir séu fjármagnaðar. Ég verð engu að síður að fá að vísa í það að við erum nýbúin að fjalla hér um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks þar sem sveitarfélögin hafa verulegar áhyggjur og það hefði farið ágætlega á því ef þar hefði verið vandað eins til verka og fjármunum úthlutað sérstaklega til sveitarfélaganna til að standa undir því sem í þeim samningi felst.
En að þessu máli, virðulegur forseti. Það segir sig sjálft að ég styð málið að sjálfsögðu, enda lagði ég fram breytingu þar að lútandi hér síðasta vor þegar við vorum að fjalla um þennan lagabálk. Ég fagna því að málið sé loksins komið inn en verð samt að fá að lýsa yfir vonbrigðum yfir því að okkur hafi ekki tekist að spara hæstv. ráðherra þessi spor sem hún er að feta núna þegar við erum komin langt inn í nóvember. Það er mjög stutt fram að áramótum og það er nú almennt ágætt að hafa aðeins meiri tíma til stefnu þegar verið er að fjalla um lagafrumvörp. Hér var komin breytingartillaga í vor og í ljósi þess sem hæstv. forsætisráðherra hafði sagt í sinni stefnuræðu og þess hvernig þingmenn meiri hlutans höfðu talað hér hefði átt að vera stuðningur við þá breytingartillögu. Og í ljósi þess að hæstv. ráðherra vísar í fjármögnun og svona þá langar mig líka að vísa til samvisku þingmanna og hæstv. ráðherra um að við förum vel með fjármagn og tíma og segi: Við hefðum getað verið búin að afgreiða þetta. Ef við hefðum öll lagst á eitt hefði hv. velferðarnefnd getað gert þessa einföldu breytingu á því frumvarpi sem lá hér fyrir vorþinginu og hæstv. ráðherra hefði getað verið að eyða tíma sínum í eitthvað annað akkúrat núna. Þeir foreldrar sem eiga von á barni væru þá vissir um hvað þeir fengju í greiðslur og biðu ekki örlaga sinna til að sjá hvort okkur takist að afgreiða þetta fyrir jólafrí.