fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og vil bara segja að þessi hæstv. ráðherra er sérlega sporlétt og hefur virkilegt yndi af því að koma hingað til ykkar og mæla fyrir góðum málum. Ég tel að með t.d. stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra, sem hv. þingmaður vísar til, þá standi það eins og stafur á bók. Ef það er vilji Alþingis að hlutirnir gangi hratt og vel fyrir sig þá efast ég ekkert um að þetta verði orðið að lögum fyrir áramót, a.m.k. vænti ég þess. Ég trúi því að málið sé það gott og kærleiksríkt að þingheimur muni ekki standa í vegi fyrir því.
Hins vegar finnst mér svolítið dapurt að ætla að fara að líkja þessu við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem þegar hefur verið fullgiltur og þegar hefur réttur fatlaðs fólks verið tryggður. Við erum bara að festa þennan samning í sessi í fyrsta lagi og í öðru lagi erum við í góðu samtali og munum vera í góðu samtali við sveitarfélögin. Við höfum öll gefið það út, þessi ríkisstjórn, að sveitarfélögin okkar eru hluti af Íslandinu okkar góða. Við erum ráðherrar og ríkisstjórn allrar landsbyggðarinnar, sveitarfélaganna hverju og einu fyrir sig. Við munum aldrei láta það koma fyrir eða gerast að við séum að sökkva sveitarfélögunum okkar sem nú þegar eru mörg hver að glíma við fjárhagsvanda og hafa verið að taka í fangið mjög mikið af verkefnum sem ríkisvaldið á undan okkur setti í þeirra fang. Við erum bara algerlega meðvituð um það. Við höfum tekið á okkur þriðja stigs þjónustu, mjög þung mál, sveitarfélaganna. Við höfum tekið að okkur 15% greiðslu sveitarfélaganna inn í uppbyggingu hjúkrunarheimila og nú eru hvorki meira né minna en hátt í 1.500 hjúkrunarrými á teikniborði þessarar ríkisstjórnar. Staðreyndin er sú að fyrir lok þessa kjörtímabils munum við vera búin að útrýma öllum biðlistum eftir hjúkrunarrýmum. Þessi ríkisstjórn er verkstjórn, hún er að vinna fyrir landið allt og ég er stolt af því.