fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn. Þetta fæðingarorlofskerfið okkar hefur tekið breytingum. Hjá fyrri ríkisstjórn var, held ég, réttur foreldra til fæðingarorlofs aukinn tvívegis þar sem var lengt í tímanum sem foreldrar gátu vænst þess að fá greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til að vera heima með börnum sínum. Ég hef alltaf sagt að mér hefur þótt frekar — á ég segja hræðilegt orð? — hallærislegt í rauninni að vera alltaf með þessa fyrirhyggju hvað lýtur að því að einstaklingar geti ráðið sínum ráðum sjálfir. En þá kom mér nú ótrúlega á óvart að fá — af því að ég hafði talið það og hef heyrt ýmsar frásagnir af því að feður hafi í rauninni nýtt sér réttinn illilega og þeir hafi hreinlega misst af þó nokkuð stórum hluta. En á þriggja ára tímabili þar sem var verið að gera úttekt á þessu, þar sem hafði verið fjölgað úr sinn hvorum fjórum mánuðunum í sinn hvora fimm mánuði eða eitthvað slíkt, þá hvorki meira né minna nýttu foreldrar 99%, 98% og 96%. Þetta er á þriggja ára tímabili. Það kom mér á óvart því að þá höfðum við fengið ónákvæm gögn í rauninni sem sýndu að þetta voru alveg bara ótrúlega margir mánuðir sem feður fullnýttu ekki. En þegar betur var að gáð þá höfðu þeir kannski ekki fullnýtt nema 29 daga í mánuðinum, það voru kannski bara einn eða tveir dagar í mánuði sem féllu út og þá var bara einfaldlega sagt að mánuðurinn væri algjörlega vannýttur. Útkoman varð sú að maður fór að hafa verulegar áhyggjur af því að þetta væri bara ósanngjarnt þar sem sérstaklega feður sátu eftir og voru ekki að nýta þessi réttindi sín. Ég á eftir að koma með enn frekari, betri og skýrari upplýsingar vegna þess að ég er að láta vinna það núna í mínu ráðuneyti að við sjáum raunverulega hvernig þessi staða er. Ég vil absalút (Forseti hringir.) að foreldrar fái að ráða ráðum sínum sjálfir um það hvernig þeir ráðstafa sínum fæðingarorlofsrétti.
Ég kem svo með í seinna andsvari pínulítið í viðbót.