fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætt svar. Það er auðvitað gleðilegt að heyra að við ráðherrann séum sammála um það að forræðishyggja hvað varðar barneignir, skiptingu innan heimilis, um foreldrahlutverkið og annað af hálfu ríkisins sé ekki af hinu góða. Ég held að það sé full ástæða til að rýna vel í þessi mál öllsömul og hef raunar beitt mér fyrir því í nefndastörfum hér á þingi að þessi mál séu tekin til athugunar hvað viðkemur framkvæmdaáætlun um jafnrétti kynjanna sem er til vinnslu. Þarna er held ég verk að vinna og áhugavert einmitt að fá skýrari gögn og tölur um nákvæmlega hvernig þessu er hagað því að tilfinningin er sú, og ákallið sem maður heyrir, að þetta sé að valda foreldrum vandræðum. Þar kemur auðvitað margt til, annars vegar fæðingarorlofskerfið sem við búum við og hins vegar skortur á dagvistunarúrræðum barna. Þetta vegur allt saman og gerir ungum foreldrum sérstaklega erfitt fyrir að fara í gegnum þessi fyrstu ár í lífi barnsins sem er akkúrat hið gagnstæða við það sem við viljum; við viljum auðvitað styðja við foreldra, hvetja fólk til barneigna og gera því mögulegt að framfleyta sér efnahagslega á meðan þessu stendur.
Þá skiptir einmitt þetta atriði máli sem ég vildi ræða við hæstv. ráðherra, fyrst við höfum nokkurn tíma, það eru tekjuviðmiðunarmörk. Það hefur verið bent á að það sé í grunninn hvati í kerfinu til að láta lengra líða á milli barneigna akkúrat vegna þess að foreldrar geta náð upp tekjum áður en þau fara í næstu umferð. Það væri áhugavert að heyra meira frá ráðherranum hvað þetta varðar.