fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Þetta var skemmtilegt andsvar hjá hæstv. ráðherra. Ég bíð spennt eftir breytingum á fjárlögum þegar ríkið ætlar að fara að kaupa bleiur og barnavagna, það verður áhugaverð og skemmtileg umræða hér í þingsal. (Menntmrh.: Það var nú ekki það sem ég sagði, hv. þingmaður. )En, virðulegur forseti, hæstv. ráðherra nefndi þetta svona í framhjáhlaupi, einhvers konar hvata til barneigna. Ég ætla að taka undir þessar spurningar og vangaveltur sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson kom hér með varðandi tímabilið sem tekið er til þess að leggja mat á það hvaða greiðslur eiga að fást út úr sjóðnum. Þetta veldur vandkvæðum og ég ætla að fá að segja það aftur, virðulegur forseti, að það hefði kannski farið ágætlega á því ef þetta þing hefði sameinast um að samþykkja nákvæmlega það sem við erum að ræða núna síðasta vor og hæstv. ráðherra hefði þá getað notað tímann til að skoða einmitt þetta atriði, því það er líka mjög mikilvægt. Og ef það er spurning um forgangsröðun hér, virðulegur forseti, þá hefði kannski forgangsröðunin verið réttari því ég heyri að ég og hæstv. ráðherra getum verið sammála um ýmislegt þegar kemur að þessum málum.
Virðulegur forseti. Ég vildi líka taka til máls því að hæstv. ráðherra sagði eitthvað á þá leið að hér hefði ekki verið vel að verki staðið hjá fyrrverandi ríkisstjórn. Hér væri bara of erfitt að eignast börn og ala upp börn. Ég hef farið ágætlega yfir það í ræðum um þessa löggjöf og breytingar sem hafa verið gerðar á henni hvað ég er stolt af því að hafa verið þátttakandi í því að breyta lögum um fæðingarorlof. Fæðingarorlofslögin íslensku eru mjög góð að mjög mörgu leyti. En ég vil vera best í heimi þegar kemur að þessu, best í heimi. Ég hvet hæstv. ráðherra til að skoða öll góð fordæmi á Norðurlöndunum eða í Kanada eða hvar sem það kann að vera og keppa að því að við komumst nákvæmlega þangað. En frjósemisfrelsi, virðulegur forseti, er mikilvægt í þessu samhengi.
Það er vissulega ákveðin áskorun að konur eignast færri börn en áður var og hér hef ég haldið ræður um það og reynt að hvetja til barneigna. Ég ætla nú að vara samt við þeim leiðum að fara einhvern veginn að kaupa fólk í þeim efnum. Fólk á að hafa frelsi til að ákveða það sjálft hvort það vill eignast börn og þá hversu mörg. En, virðulegur forseti, það er full ástæða til þess að hið opinbera geri fólki það eins auðvelt og hægt er, til að mynda með niðurgreiðslu frjósemismeðferða fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með það, með lengingu fæðingarorlofs og hækkun þaks eins og við erum hér að fjalla um og mögulegar breytingar á reiknireglum sem lúta að því hvaða fyrirvari er þegar viðmið er tekið. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður kom inn á áðan og benti á þessa ágætu grein sem var á Vísi í dag og hefur fengið mikla útbreiðslu, það er svona ákveðin reikniformúla fyrir ungt fólk hvenær það er raunverulega best að eignast barn. En því miður þá virkar náttúran ekki svoleiðis, þannig að jafnvel þó að þú notir reikniformúluna til að vita hvað þú getur fengið greitt úr Fæðingarorlofssjóði er alls óvíst að náttúran muni svara því kalli og vera sammála því hvernig þetta er reiknað út.
Virðulegur forseti. Ég styð allar góðar breytingar en verð líka ítrekað að það hafa átt sér stað mikilvægar og góðar breytingar á síðustu árum. Ég er stolt af því að hafa verið þátttakandi í því. Það er margt mjög gott í okkar kerfi en það er ýmislegt sem má betur fara. Viljum við horfa sérstaklega til barnafjölskyldna og gera þeim eins auðvelt fyrir og hægt er, þá er, fyrir utan að horfa á fæðingarorlofskerfið sem er mikilvægt og er á okkar borði, ekki hægt að skauta fram hjá umræðunni um leikskóla. Hæstv. ráðherra kom inn á það í andsvari við mig áðan hversu ofboðslega góðu samstarfi þessi ríkisstjórn væri í við sveitarfélögin í landinu og hér myndi nú örugglega ekkert fara úrskeiðis í þeim efnum í framhaldinu. Þá vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að taka upp þetta samtal við sveitarfélögin, að það sé hægt að tryggja að hægt sé að veita þjónustu frá eins árs aldri eða þegar fæðingarorlofi sleppir í leikskólum sveitarfélaganna í þessu landi. Sum sveitarfélög standa sig alveg ofboðslega vel en önnur síður og við þekkjum þá umræðu.
Virðulegur forseti. Einnig er ekki hægt að láta hjá líða að nefna það að skattar hafa mikil áhrif á heimilisrekstur. Þessi ríkisstjórn sem fór þannig fram í kosningabaráttunni og ætlaði ekki að hækka skatta á venjulegt fólk og venjulegar fjölskyldur er að gera einmitt það. Ef við hæstv. ráðherra getum sammælst um mikilvægi þess að gera ungu fólki eins auðvelt og kostur er að eignast börn, ef þau það kjósa, þá held ég að það væri bara ástæða til að fara yfir fjárlagafrumvarpið eða öllu heldur bandorminn sem fylgir fjárlagafrumvarpinu og fara bara yfir þessa þætti, hvernig við gætum gert yngra fólki barneignir auðveldari. Þar eru allmörg dæmi. Ég efast ekki um að við í Sjálfstæðisflokknum séum tilbúin að koma með breytingartillögur og það verður spennandi að sjá hvernig greidd verða atkvæði um þær þegar við afgreiðum fjárlagafrumvarpið fyrir jól. Eins og ég segi, virðulegi forseti, það er af ýmsu að taka þar og við höfum ítrekað bent á það í þessum þingsal. Ég hvet hæstv. ráðherra til að taka þær hugmyndir okkar heim í ráðuneytið og sjá hvort þær séu ekki nýtilegar til að ná fram þessu markmiði sem hæstv. ráðherra virtist hafa og ég get tekið undir: Gerum ungu fólki á Íslandi, ungum fjölskyldum, eins auðvelt og mögulegt er að eignast börn ef þau það kjósa.