157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[17:11]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið sem ég hélt reyndar að væri ræða hjá hæstv. ráðherra. Ég sé að þegar ég og hæstv. ráðherra eigum samtal hér í gegnum þetta púlt þá getum við bara oft sammælst um ýmsa hluti. Ég held að við ættum kannski líka að skoða það sem við Sjálfstæðismenn höfum verið að benda á, þessa breytingu er varðar skattþrepin þar sem er verið að taka af þessa tekjutengingu hjóna. Ég held að það sé t.d. eitt sem við höfum ítrekað bent á. Það er oft þannig að barnafjölskyldur eru einmitt að nýta þetta, þ.e. sá sem er með hærri tekjur getur nýtt það sem eftir er á miðþrepi hins aðilans sem kannski er heimavinnandi eða vinnur minna. Það er nú eitt.

Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir, sem var einmitt flutningsmaður þessarar breytingartillögu, sem við erum að sjá núna í frumvarpi hæstv. ráðherra, hefur líka lagt fram frumvarp varðandi persónuafslátt barna. Við höfum velt fyrir okkur virðisaukaskatti á barnavörum og öðru þannig að við getum nefnt mýmörg dæmi og við gætum kannski bara sest yfir það, ég og hæstv. ráðherra, er varða skattalækkun og/eða að taka í burtu skattahækkanir sem þessi ríkisstjórn hefur boðað.