almannavarnir.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Ég tel mikið fagnaðarefni að þessi vinna sé hér fram komin sem ég veit að hefur staðið yfir í nokkur ár og hefur stundum komið til umræðu í þessum sal. Það er eiginlega með ólíkindum hversu oft við höfum gengið í gegnum almannavarnahættuástand á síðustu árum. Það var ekki bara Covid með öllum þeim aðgerðum sem þar voru undir heldur líka núna eldarnir á — fyrirgefðu, er ég bara með eina mínútu eða fjórar?
(Forseti (EÁs): Eina.)
Þá vind ég mér beint í spurninguna. Það er eftirlitið. Nú er sú sem hér stendur með frumvarp fyrir þinginu um að endurvekja rannsóknarnefnd almannavarna. Ég sé að hér eru ekki gerðar neinar breytingar frá því sem er í gildandi lögum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Var þetta eitthvað skoðað í vinnunni og hver er þá afstaða hæstv. ráðherra og sérfræðinga sem um málið fjölluðu nákvæmlega um þann þátt?