almannavarnir.
Frú forseti. Ég þekki til þessa frumvarps sem hv. þingmaður nefnir og kannski er hægt að svara málinu með þessum hætti: Með lagabreytingu 2022 var rannsóknarnefnd almannavarna lögð niður og hinu þrepaskipta kerfi við rýni komið á; við værum með innri og ytri rýni. Eðli málsins samkvæmt, árið 2025, var ekki mikil reynsla komin á þetta fyrirkomulag. Það var hins vegar forsenda eða röksemdafærsla fyrir breytingunni fyrir þremur árum síðan að það fyrirkomulag sem hafði verið við lýði hefði ekki náð tilgangi sínum þannig að ég er þeirrar skoðunar að það sé rétt að leyfa þessari breytingu sem gerð var 2022 að fá að standa. Ég er þeirrar skoðunar að eftirlitið sé mikilvægt og að það sé hægt að kalla eftir ytri rýni óháðra aðila þegar þörf er á. Með frumvarpinu er tryggt að bæði samráðshópur ríkislögreglustjóra og ráðherra geti kallað eftir rýni óháðra utanaðkomandi sérfræðinga. Svo bendi ég auðvitað á að þingið á vitaskuld alltaf það úrræði að geta kallað saman rannsóknarnefnd.