almannavarnir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra þetta og þekki vel þessa forsögu enda tók ég þátt í að leggja niður rannsóknarnefnd um almannavarnir. Það er bara þannig. Þá voru færð rök fyrir því frá ráðuneytinu að þetta hefði ekki virkað nógu vel. Reyndin var nú reyndar sú að sú nefnd hafði einu sinni fengið verkefni. Það var stóra óveðrið, að mig minnir 2019. Nefndin hafði kannski ekki fengið þau aðföng og það sem hún í raun þurfti. Eftir hið hræðilega dauðsfall sem varð í Grindavík fór ég til að mynda að skoða þessi mál og það varð uppi ákveðið ákall um það hvort ekki væri ástæða til að endurvekja þetta. Ég hef því gert það með þessu frumvarpi og ég stend við það sem ég segi í greinargerðinni þar. Ég held að betur færi á því að hafa öflugri rýni þannig að mig langar að hvetja hæstv. ráðherra til að skoða það og jafnframt þá sem sitja í hv. allsherjar- og menntamálanefnd, að skoða þetta frumvarp sem ég hef lagt hér fram. Ég held að vel færi á því. Mig langar að bæta aðeins við spurninguna til hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) varðandi samstarf við hin Norðurlöndin því að við sem erum í norrænu samstarfi þekkjum mjög vel áhersluna (Forseti hringir.) á almannavarnir og viðbragð þar að lútandi. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um (Forseti hringir.) samstarf við hin Norðurlöndin í þessum málaflokki.