157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[17:46]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. ráðherra kærlega til hamingju með þetta frumvarp sem er að mörgu leyti mjög gott og þarft. Sá sem hér stendur hefur starfað töluvert í þessu umhverfi og þekkir þar af leiðandi aðeins til. Ég ætla að fara hér í ræðu á eftir og fara aðeins yfir þetta en mig langar hins vegar á þessari einu mínútu sem ég á hér til að aðeins — af því að hæstv. ráðherra kom inn á 38. gr. í framsögu sinni sem varðar aðgengi fjölmiðla og samstarf. Þar finnst mér vera kveðið heldur veikt að orði. Þar segir:

„Í almannavarnaástandi skulu viðbragðsaðilar leitast við að tryggja aðgengi fjölmiðla.“

Eins og ég kom inn á hér áðan, virðulegur forseti, þá hef ég nú starfað töluvert í þessu. Það er alveg gríðarlega mikilvægt að fjölmiðlar hafi aðgang og að við getum nýtt fjölmiðla og að þeir hafi (Forseti hringir.) lögbundið hlutverk í almannavarnakerfinu.(Forseti hringir.) Hefur hæstv. ráðherra spáð í þessa hlið málsins?