157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[17:47]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Ég þakka þingmanninum fyrir mjög góða spurningu. Ég hef velt þessu töluvert fyrir mér af því að ég er einlæglega sammála því sem hv. þingmaður er að nefna um stórt hlutverk fjölmiðla varðandi upplýsingagjöf og beina þátttöku í þessum aðstæðum. Þetta er auðvitað ein af grundvallarskyldum fjölmiðla og um leið réttur þeirra. En það er rétt; það er talað um að leitast skuli við sem er ákveðið markmið. Ég hugsa að það sé flókið að útfæra það nákvæmlega en það er sannarlega verkefni sem ég er opin fyrir. Ég veit að fulltrúar dómsmálaráðuneytisins hittu fulltrúa Blaðamannafélagsins þegar þetta frumvarp var í smíðum. Það var mér mikið hjartans mál að þetta kæmi hér skýrlega fram að þegar við erum að tala um eitthvert ástand eins og þetta er fjölmiðlum sannarlega ætlað hlutverk. Mín hugsun er sú að það þurfi að rökstyðja sérstaklega allar takmarkanir þannig að útgangspunkturinn sé skýrt hlutverk og skýr réttur fjölmiðla í þessum efnum.