almannavarnir.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hæstv. ráðherra sé jákvæð fyrir þessari mögulegu breytingu. Ef maður les greinargerðina um 38. gr. er farið aðeins dýpra inn í hugmyndafræðina og það skýrir þetta aðeins betur. Spurningin mín hér að síðara sinni er hvort hæstv. ráðherra myndi ekki bara vera sammála þeim sem hér stendur í að hvetja nefndina til þess að skoða þessa grein vel með það að markmiði að ná að tryggja betur ábyrgð fjölmiðla í þessu ástandi og að þeir hafi í raun og veru lögbundið hlutverk í þessari almannavarnakeðju. Við höfum oft heyrt á það minnst, og hæstv. ráðherra talaði um það hér áðan í ræðu sinni, að þetta væri ein af (Forseti hringir.) grunnstoðum Ríkisútvarpsins, almannavarnavinkillinn. Ég veit ekki til þess að það sé neins staðar sett í lög. (Forseti hringir.) Er þetta ekki alveg gullið tækifæri fyrir okkur til að tryggja það (Forseti hringir.) af því við erum með þetta mál hér í umfjöllun. Afsakaðu, virðulegi forseti.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar ræðutímann sem er ein mínúta.)