almannavarnir.
Frú forseti. Mér finnst vel koma til greina að nefndin skoði þetta. Eins og ég segi þá finnst mér greinin vera teiknuð upp með þeim hætti, þegar fjallað er um hlutverk fjölmiðla, að það þurfi sérstaklega að rökstyðja það ef tempra eigi aðgengi að því. Það skiptir máli, eins og hv. þingmaður nefnir, að þetta er réttur fjölmiðla en þetta er líka skylda við þessar aðstæður þannig að mér þætti bara mjög vel til fundið að nefndin skoði þetta sérstaklega. Greinargerðin finnst mér ítreka og árétta hver hugsunin er. Þarna finnst mér raunar að fjölmiðlar mættu líka sjálfir taka sér pláss í því að skýra sitt hlutverk. Það verður að hafa í huga, þegar við erum að tala um heimsmyndina, að fjölmiðlar eru starfandi meira að segja á þeim stöðum þar sem stríðsrekstur er í gangi. Við höfum samþykkt það og göngum út frá því að við mjög hættulegar aðstæður séu fjölmiðlar á vettvangi vegna þess að þeir eru að sinna mikilvægum störfum. Auðvitað á sama hugsun líka við hér á Íslandi í tengslum við almannavarnir.