almannavarnir.
Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta framsögu á þessu frumvarpi sem er viðamikið og hefur lengi verið í bígerð og vinnslu. Ég er með fjöldamargar spurningar en tíminn leyfir ekki nema kannski tvær eða þrjár. Ég ætlaði fyrst að spyrja aðeins um 18. gr. þar sem talað er um greiningu sveitarfélaga. Þarna er ábyrgð greiningar, þ.e. hættumats, lögð í hendur sveitarfélaga. Sum sveitarfélög eru veikburða, lítil, landmikil o.s.frv. og þurfa auðvitað einhvers konar aðstoð við að byggja sitt hættumat sem oft er kannski viðamikið og rándýrt. Ég þekki það sjálfur. Hefur það ekki komið til greina að ríkisvaldið myndi koma eitthvað þarna inn frekar en þarna er gert ráð fyrir? Það er reyndar talað um að við gerð aðgerðaráætlunar sé hægt að leita aðstoðar ríkislögreglustjóra en þetta á ekki við um hættumatið sjálft.
(Forseti (EÁs): Forseti vill minna minna hv. þingmann á að það ber að ávarpa forseta í upphafi máls.)