almannavarnir.
Frú forseti. Ég fjallaði í framsöguræðu minni um skyldur sveitarfélaga og fyrirbyggjandi aðgerðir. En af því að hv. þingmaður spyr um þetta þá byggir ákvæðið á meginreglunni um sviðsábyrgð og grenndarreglunni. Eins og ég nefndi í framsöguræðu minni þá er það nú þannig í gildandi lögum að þegar er gert ráð fyrir að sveitarfélög gegni ákveðnum skyldum varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir, t.d. það að kanna áfallaþol og gera viðbragðsáætlanir. Hér er næsta skref stigið og talað um aðgerðaáætlanir líka. Auðvitað er það alveg rétt að sveitarfélögin eru sannarlega missterk innbyrðis eða misstór en við eigum samt sögu af því á Íslandi að við höfum sannarlega getað brugðist við þrátt fyrir þetta. Það er ekkert nýmæli í þessu frumvarpi að við séum að ramma inn hlutverk sveitarfélaga að þessu leyti. Ég skil þetta miklu frekar þannig að þetta séu ekki nýmæli heldur séum við að skýra hver krafan er og hjálpa sveitarfélögunum að því leyti til (Forseti hringir.) að ramma inn til hvers er ætlast.