157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[17:54]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Nei, ég var ekki að nefna að þetta væru nýmæli. Ég var bara að spyrja hvort ekki hafi komið til greina að það kæmi einhvers konar aðstoð frá ríkisvaldinu við gerð hættumats. Ég ætlaði einnig að spyrja um 43. og 44. gr. af því að þar eru nýmæli. Hæstv. ráðherra, ég spyr: Þegar verið er að kveðja mann til aðstoðar á hættustundu, sem er ekki nýmæli, þá vantar inn í lögin núna, eins og var í gömlu lögunum, að þetta yrði gert ef brýna nauðsyn beri til. Það er fellt út. Það eru nýmæli. Af hverju? spyr ég.

Ég ætlaði einnig að spyrja um almannavarnanefndir í sveitarfélögum. Þar eru líka nýmæli vegna þess að þessu er snúið við frá gildandi lögum. Áður fyrr var það þannig að í hverju sveitarfélagi átti að vera almannavarnanefnd. Nú er þessu snúið við; í hverju lögsagnarumdæmi lögreglustjóra eigi að vera almannavarnanefnd. Þetta er auðvitað ekkert nýtt í huga okkar sem höfum unnið við þetta. En ég spyr bara: Í sumum landstórum lögregluembættum eru sveitarfélögin mjög ólík, mjög landstór og ólík. Af hverju þurfti að gera þetta svona?