almannavarnir.
Frú forseti. Kannski fyrst varðandi það að almenningur beri borgaralega skyldu í almannavarnaástandi, eins og þingmaðurinn nefnir, að það sé hægt að kveðja menn til, þá hafa sambærilegar heimildir verið í lögunum frá árinu 1962. Ég verð að játa að þegar hann nefnir þetta með brýna nauðsyn þá þekki ég ekki forsöguna þar en mér finnst sjálfsagt að þetta verði skoðað af því þetta er auðvitað veigamikill punktur. En mig langar samt að árétta: Þetta er algerlega efnislega samhljóða ákvæði. Hér er hugsunin ekki sú að það sé verið að leggja neitt nýtt til.
Aftur varðandi sveitarfélögin þá þekkja þau auðvitað svæðin best og það er eiginlega stefið í frumvarpinu öllu og raunar í gildandi lagasetningu líka. Síðan er það auðvitað annað samtal hvernig það er útfært varðandi aðstoð og annað og það finnst mér líka vera atriði sem hægt er að ræða við meðferð málsins í nefndinni. En hugmyndafræðin er að hver þekki sinn stað best og að sveitarstjórnir séu að jafnaði best til þess fallnar að halda áfram þessari vinnu.