157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[17:56]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu og þetta mál hérna sem ég hlakka til að gaumgæfa betur í starfi allsherjar- og menntamálanefndar. Ég er með spurningu til hæstv. ráðherra sem varðar kannski svolítið kjarnaatriði þessa máls og það er í rauninni hvert hlutverk hins opinbera er þegar kemur að þessum almennu varnarmálum, almannavarnamálum og öryggismálum. Ástæðan fyrir því að ég spyr hæstv. ráðherra að þessu, sem kann að hljóma einkennilega í fyrsta sinn, eru þessi málaferli sem íslenska ríkið á í núna við fyrirtæki á Suðurnesjunum þar sem er verið að undirbyggja kröfur um endurgreiðslu kostnaðar sem féll á íslenska ríkið. Er þar byggt á reglunni um óumbeðinn erindisrekstur, þ.e. reglunni sem gengur út á að sá sem óumbeðið bjargar hagsmunum annars á hættustundu eigi rétt á að fá bættan þann kostnað. Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra út í þetta vegna þess að í frumvarpinu er talað um (Forseti hringir.) frumkvæðisskyldu, undirliggjandi björgunarskyldu, þannig að ég hlakka til að heyra meira frá ráðherranum um þetta.