157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[17:58]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Þingmaðurinn vísar hér til þess að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjaness að dómkvaddir verði matsmenn til að meta kostnað ríkissjóðs af þessum aðgerðum sem ráðist var í og við þekkjum hverjar voru. Þetta er kjarnaatriði, að meta það hver kostnaðurinn var. Það er ekki markmið ríkisins með þessari matsbeiðni fjármálaráðherra að gera neinar grundvallarbreytingar á því fyrirkomulagi sem verið hefur. Hlutverk ríkisins er algjörlega skýrt í þessu frumvarpi og í gildandi lögum, en það er mikilvægt að halda utan um það hver kostnaðurinn er sem fallið hefur til og þann ábata sem af því starfi hefur verið og ástæðan er þessi: Þessi viðbrögð við eldgosavá eru íslensk uppfinning og það að fá mat á ábata af slíkum aðgerðum skiptir gríðarlega miklu máli þegar kemur að því að verja hagsmuni Íslands í endurtryggingum á mögulegum tjónum. Matsbeiðnin lýtur að þessu, að ná fram með skýrum hætti hver kostnaðurinn var. Varnargarðar í Grindavík hafa heppnast gríðarlega vel og ríkissjóður lagði til verulega fjármuni (Forseti hringir.) — svo held ég áfram í næsta svari.