almannavarnir.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svar sitt en auðvitað er það ekki þannig að hér sé um einhvers konar skýrslubeiðni að ræða heldur lið í málaferlum íslenska ríkisins þar sem því er haldið fram að íslenska ríkið eigi endurkröfurétt á hendur þessum aðilum. Það er verið að undirbyggja það og ekki bara í einhverju tilraunaskyni heldur til þess að gera nákvæmlega það sem er byggt á í þessari matsbeiðni sem hefur nú verið birt opinberlega og miðar að því að eigendum þessara hagsmuna, fyrirtækjunum sem voru þarna, beri að halda erindrekanum, þ.e. íslenska ríkinu, skaðlausum vegna útgjalda hans við að gæta að hagsmunum. Þarna komum við að því kjarnaatriði að hér er að mínu viti verið að rjúfa einhvers konar sátt sem hefur staðið um þessi mál. Ef það er ætlunin að þeir sem þurfa á björgunaraðgerðum að halda og njóta þeirra þurfi að endurgreiða kostnaðinn þá spyr ég hæstv. ráðherra: Væri ekki ráð, ef það er ætlunin, að setja þá slíka reglu einfaldlega í þetta frumvarp?