almannavarnir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið sem er mjög áhugaverð spurning og ég veit að ég og hv. þingmaður gætum setið hér í allt kvöld og rætt um aðgerðastjórnstöð og samhæfingarmiðstöð. Að mínu viti er aðgerðastjórnin lykilþáttur í allri stýringu. Aðgerðastjórnstöðin, þar sem þú ert með heimaaðilana sem þekkja bæði svæðið og allar bjargir inni á svæðinu og vita hvar er hægt að ná í „rísorsana“ — afsakaðu orðbragðið, virðulegur forseti — er bara gríðarlega mikilvæg. Það er hins vegar ekki síður mikilvægt fyrir aðgerðastjórnstöðina og þá sem þar starfa að hafa síðan tenginguna í samhæfingarmiðstöðina þar sem þú ert með sérfræðingana og svona landsdekkandi úrræði sem oft og tíðum getur þurft á að halda. Í langflestum tilfellum þar sem aðgerðastjórnstöð er virkjuð heima í héraði kemur hins vegar ekki til þess að samhæfingarmiðstöðin sé mikið með puttana í því verkefni. Aðgerðastjórnstöðin, með þá fagaðila sem þar eru inni getur kallað til þá sem til þarf í hvert sinn, bara byggt á verkefninu, og er því alveg gríðarlega mikilvæg. Þarna ertu með aðila sem í flestum tilfellum þekkjast, hafa unnið saman, og það verður til þess að allir ferlar og allt verkefnið gengur mun smurðar fyrir sig. Aðgerðastjórnstöðin er því að mínu viti algjört lykilatriði.