157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[18:30]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla aðeins að spyrja hv. þingmann, og þakka honum fyrir hans ræðu, varðandi viðhorf hans til 38. gr. sem hv. þingmaður spurði sjálfur um hér áðan. Sú grein varðar aðgengi fjölmiðla að svæðum sem eru undir vá á ýmsum stigum. Hvað sér hv. þingmaður fyrir sér að ætti að vera og ætti heima í lögum hvað varðar aðgengi fjölmiðla? Nú hafa fjölmiðlar í nokkrum tilvikum lent upp á kant við almannavarnayfirvöld og skemmst er að minnast Grindavíkur í því tilliti. 38. gr., sem fjallar um aðgengi fjölmiðla, segir svo sem ekki neitt. Að viðbragðsaðilar skuli leitast við að tryggja aðgengi fjölmiðla, þetta segir ekki neitt. Og í greinargerð um 30. gr. er svo sem ekki farið neitt nánar út í þetta. Almannavarnayfirvöld, aðgerðastjórn í einhverju tilviki eða vettvangsstjórn, hafa auðvitað fulla heimild til að takmarka aðgengi að hættusvæði en ábyrgð fjölmiðla og skyldur þeirra eru auðvitað líka mjög miklar. Sér hv. þingmaður fyrir sér að þessari grein ætti hugsanlega að breyta og þá á hvaða hátt? Hefur hv. þingmaður einhverja hugmynd um það hvernig hún ætti þá að hljóða?