157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[18:34]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætt svar og ætla að snúa mér að öðru. Mig langar að spyrja hv. þingmann um skipun almannavarnanefnda. Ég spurði hæstv. ráðherra út í þetta en ekki gafst tími til þess, hvorki af minni hálfu né hæstv. ráðherra, að svara því. Nú eru umdæmi lögreglustjóra orðin ansi stór víða. Hv. þingmaður kemur af norðvestursvæðinu og þar eru Húnavatnssýsla og Skagafjörður; það er eitt sveitarfélag í Skagafirðinum en fleiri í Húnavatnssýslu og hafa verið til langs eða skamms tíma. Ég spyr hvort eðlilegt sé að miða við lögregluumdæmin; að þetta byrji sem sagt í höndunum á lögregluumdæmunum, að það sé ein almannavarnanefnd í hverju lögregluumdæmi, sem eru sum hver mjög stór og víðfeðm og ólík og kannski heilu fjallgarðarnir á milli. Ég spyr hvort eðlilegt sé að líta þannig á þetta, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, að það skuli fyrst líta á lögregluumdæmin í stað þess að líta til sveitarfélaga, eins og gert hefur verið samkvæmt gildandi lögum, og síðan sameinist sveitarfélögin hugsanlega um sína almannavarnanefnd. Þetta er öfugt í þessu frumvarpi, í lögregluumdæmi skulu sveitarfélögin þá hugsanlega koma sér saman um tvær nefndir ef svo ber við. Þetta er örlítil breyting, áherslubreyting að þessu leyti til. Skagafjörður og Húnavatnssýsla eru náttúrlega mjög ólík svæði og langt þar á milli; kannski ekki mikil samlegðaráhrif og ólíkar hættur á hvoru svæði fyrir sig en þó enn frekar á Austfjörðum og Vestfjörðum. Ég myndi vilja fá álit hv. þingmanns á þessu.