157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[18:36]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er frábær spurning hjá hv. þingmanni og það er nánast ógerningur að ætla að svara henni á tveimur mínútum. Ég hef töluverða reynslu af þessu og man þegar við lentum í óveðrinu 2019 þegar svæðið sem hv. þingmaður nefndi var rafmagnslaust í fleiri daga og óveðrið var þannig að ekki komst nokkur maður á milli húsa. Þá vorum við í aðgerðastjórninni að fást við ansi margar almannavarnanefndir. Það var almannavarnanefnd í Skagafirði, í Austur-Húnavatnssýslu og í Vestur-Húnavatnssýslu; seinna kom í ljós að það átti eftir að skipa í almannavarnanefnd í Vestur-Húnavatnssýslu sem varð til þess að það var gríðarlegt hikst í byrjun á því verkefni. Við settum upp aðgerðastjórnir út um allt, á Blönduósi, Hvammstanga og Sauðárkróki, og stýrðum því síðan úr aðgerðastjórnstöðinni hjá okkur en það var ákveðið sjálfræði á hinum stöðunum.

Ég er ekkert viss um að það sé skref aftur á bak að vera með eina almannavarnanefnd fyrir lögregluumdæmin. Ég held í mörgum tilfellum að það geti bara verið til bóta. Það þarf þá bara að tryggja að það séu aðilar alls staðar að af svæðinu. Það er lögreglustjóri sem fer með yfirstjórnina, eins og hv. þingmaður veit mjög vel. Ég held því að við séum ekki á rangri leið með því að hengja (Forseti hringir.) almannavarnanefndina á lögregluumdæmin. Ég held að það gæti í mörgum tilfellum bara verið mjög gott skref.