almannavarnir.
Frú forseti. Við erum hér enn þá að ræða frumvarp til laga um almannavarnir sem er mjög gott frumvarp, þó að ég segi sjálfur frá. Ég er í þeirri sérstöku aðstöðu núna sem þingmaður að vera hér að fjalla um frumvarp sem ég er búinn að vinna mjög mikið í í a.m.k. tvö ár, ef ekki lengur. Það eru auðvitað bara forréttindi að fá tækifæri til þess að fylgja svona mikilvægu máli alla leið. Í minni fyrri ræðu hér í dag fór ég í gegnum sögu almannavarna og tenginguna og hvernig við komumst hingað og hvert við ætlum að stefna með þessu frumvarpi þegar það verður að lögum. Mig langaði kannski aðeins að halda áfram á pínulítið svipuðum slóðum. Það hafa aðeins komið fram í þessari góðu umræðu í dag vangaveltur um ýmsa þætti og af hverju þetta er svona og af hverju þetta er hinsegin og menn hafa velt fyrir sér hvernig kerfið gæti verið, hvort þetta væri rétta kerfið eða hvort við ættum að fara eitthvað annað.
Mig langar kannski aðeins að rifja upp sögu síðustu ára sem við höfum unnið í þessu verkefni. Það var öflugur hópur starfsmanna ráðuneytisins sem leiddi vinnuna, gríðarlega öflugur eins og ég nefndi hér í upphafi. Síðan voru fengnir sérfræðingar til að vera með ráðuneytinu í þessari vinnu, fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fulltrúar frá lögreglustjórum, fulltrúar sveitarstjóra og þessi hópur studdi við þessa vinnu ráðuneytisins. Það sem mér fannst gríðarlega mikilvægt að ná sátt um í upphafi, þegar verkefnið var að fara af stað, var að byrja með autt blað. Það var farið um allt land og haldnir fundir með almannavarnanefndum, sveitarfélögum og viðbragðsaðilum, tugir funda, og grunnspurningin var hvernig almannavarnakerfið á Íslandi eigi að vera. Það var ekki byrjað, eins og oft er, að skrifa eitthvert frumvarp, velta fyrir sér einhverjum lagatexta, heldur eyddum við mestum tíma í það að skilgreina hvernig við búum til besta mögulega almannavarnakerfi á Íslandi. Niðurstaðan úr því varð heilmikil vinna og mikið af gögnum og skýrslum sem starfsfólk ráðuneytisins tók síðan og notaði til að teikna upp það sem við höfum hér fyrir framan okkur sem frumvarp til laga um almannavarnir. Það er afskaplega gott. Eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra var niðurstaðan að fara ekki í neina byltingu heldur að skerpa á tilteknum hlutum. Mig langar kannski svona hratt í þessari síðari ræðu minni að hlaupa aðeins yfir þau atriði.
T.d. var fellt niður það sem hét almannavarnaráð og það er búinn til, m.a. með forstjórum ríkisstofnana, fulltrúum sambanda, fulltrúa Rauða krossins, Landsbjargar og fleiri aðila, samráðshópur fyrir ríkislögreglustjóra til að leita til. Þetta er eitt af því sem við sáum að væri þörf fyrir, að við gætum náð saman stórum hópi til að ræða málin, bæði taka stöðuna tvisvar á ári en líka þegar eitthvað bjátar á að kalla hópinn saman sem mun væntanlega, eins og kemur fram seinna í frumvarpinu, vera meira og minna þessir aðilar sem eru rekstraraðilar þessara mikilvægu og ómissandi innviða.
Það kom líka alveg skýrt fram í vinnunni að það vantaði skýrari aðkomu ráðherra að þessu. Það hafa verið búnar til ráðherranefndir — fyrirgefðu, frú forseti, ég kann ekki íslenska orðið — ad hoc, settar fram ráðherranefndir á þeirri stundu til að vinna með málin og sama með vinnuhóp ráðuneytisstjóra. Núna er verið að festa þetta í sessi og það er gríðarlega mikill munur, bæði fyrir kerfið í heild sinni og ekki síður fyrir það fólk sem sinnir þessum verkefnum, að vita af þessari skyldu sinni að sitja í og vera þátttakendur í þessu samstarfi.
Síðan langar mig líka að fjalla aðeins um endurreisnina. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa ekki fallið í þá freistingu að kalla þetta viðreisn, þó svo að það sé ágætisorð líka. Endurreisn er orð sem hefur fest sig í sessi og orðið hluti af fræðigrein þar sem fjallað er um seiglu samfélaga sem er svo mikilvæg í þessu samhengi.
Ég sé að tíminn er hlaupinn frá mér en ég hlakka mikið til að vinna með þetta í nefndinni og vinna þetta síðan hér með þinginu. Ég er alveg sannfærður um að við séum með gott plagg og ég heyri það á þingmönnum sem hafa kvatt sér hljóðs í þessari umræðu í dag að við munum vinna þetta þvert á flokka og við munum þurfa að vinna þetta líka þvert á margar nefndir í þinginu. Þetta verður spennandi og skemmtilegt verkefni sem við getum öll sameinast um og skilað af okkur góðri vinnu hér þegar líður að vori.