almannavarnir.
Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir þessa spurningu því ég hafði einmitt skrifað á blaðið mitt: Covid, samþættasta svæðið og stjórnsýsluhindranir. Ég hafði gleymt að fara yfir það hér í ræðunni minni að þetta er nákvæmlega það sem hv. þingmaður spyr um. Norrænt samstarf féll í Covid. Öll fögru fyrirheitin, öll fínu plöggin, samþættasta svæði í heimi, allt þetta; ég vil meina að þetta hafi bara fallið í Covid. Mette Frederiksen ákvað bara að loka landinu án þess að tala við sína næstu nágranna jafnvel þótt fjöldi Svía kæmi yfir til Danmerkur á degi hverjum til að sinna vinnu. Uppi varð bara risastórt vandamál. Það er ekki síst þess vegna sem ég er að tala um mikilvægi þess að reyna að formgera þetta með einhverjum hætti, að það séu einhverjar skuldbindingar til staðar, því eins og ég var að segja, og ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra heyrði, þá fagna ég mjög þessari yfirlýsingu. Norrænir þingmenn og Norðurlandaráð tóku þetta sérstaklega upp eftir Covid. Þessar yfirlýsingar höfðu allar verið til staðar. Þessi skýrsla var unnin og það kom í ljós að við brugðumst. Við brugðumst í þessu norræna samstarfi, að vera samþættasta svæðið og vinna hvað mest saman. Hver fór að hugsa um sig og það er auðvitað hættan þegar upp kemur hættuástand, að hver hugsi bara um sína heimahaga. Ég hjó eftir því og held að það hafi verið hv. þingmaður sem fór líka að ræða mikilvægi þess að þetta sé skýrt. Ég meina, við höfum alveg séð það úti á Reykjanesi núna. Hver ræður? Er það ríkislögreglustjóri, almannavarnateymið þar eða lögreglustjórinn? Við höfum auðvitað ekki tíma fyrir svona þegar hættuástand kemur upp, það þarf því að vera alveg skýrt. Ég ætla bara að þakka fyrir að fá tækifæri til að nefna þetta því ég held að það sé einmitt mjög mikilvægt að formgera þetta alveg.
Ég fagna því að heyra af þessu samstarfi stofnananna sem mér var ekki fyllilega kunnugt um en þingmannasamtökin hafa auðvitað fyrst og fremst verið með einhvers konar þingsályktanir sem hafa verið sendar til ríkisstjórnanna og þær stundum brugðist vel við og stundum minna, eins og vill nú verða líka á þessu ágæta þingi hér. Ég held þó að það sé mikill vilji til staðar og ég hef meira að segja (Forseti hringir.) gengið það langt að tala um norrænan her. Þarna getum við auðvitað velt fyrir okkur hver tekur (Forseti hringir.) ákvörðun um hvað og hver deilir hverju, sem verður flókið og mikilvægt að ná utan um.