almannavarnir.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta andsvar. Í mínu seinna andsvari langar mig aðeins að velta upp hugmynd sem hefur verið í höfðinu á mér í dálítið langan tíma varðandi einmitt þetta norræna samstarf. Það er þannig að á vettvangi þessara stofnana hefur verið haldið námskeið á hverju ári — það féll auðvitað niður á Covid-tímanum — sem er svona „Chef-kúrs“, með leyfi forseta, yfirmannanámskeið. Þetta námskeið var haldið hér á Íslandi fyrir tveimur árum. Þá varð ég hissa á jákvæðan hátt en einn af fulltrúum Norðmanna á námskeiðinu var þingmaður. Reyndar var Gísli Rafn Ólafsson fulltrúi Íslendinga sem gamall björgunarsveitarmaður en hann er líka fyrrum þingmaður. Þetta breytti svolítið samtalinu. Þess vegna langaði mig að velta því upp við þingmanninn — ég veit að hún er varaformaður íslenska samstarfsins í Norðurlandaráði — hvort við ættum kannski að hugleiða það að tengja þessa hópa saman með þátttöku í slíku námskeiði þar sem er verið að vinna með raunveruleg vandamál, t.d. skógarelda í Noregi, hvað eigi að gera til að hjálpa til við það, eða hraunkælingu á Íslandi; hvort við ættum að tengja þingið við þetta og bjóða þingmönnum upp á að sækja þessi námskeið sem eru haldin til skiptis á Norðurlöndunum, yfirleitt haldin á hverju hausti. Finnar voru með námskeið á þessu ári og ég man ekki hvaða Norðurlandaþjóð er næst en þarna gæti verið komið tækifæri til að tengja þingmenn við þennan raunveruleika, það sem er að gerast og hvað þingmenn geta gert. Hugsanlega tengist það þá líka upp í ráðuneyti og niður í stofnanirnar því að það er mjög fjölbreyttur hópur fólks úr ýmsum geirum sem mætir á þessi námskeið.