almannavarnir.
Herra forseti. Mér þykir þetta bara prýðishugmynd hjá hv. þingmanni. Það rifjast nú upp fyrir mér að það er möguleiki að ég þekki umræddan norskan þingmann, sem mig minnir að hafi verið að segja mér frá þessu mjög áhugaverða máli, þannig að ég tek undir það. Við lögðum mikla áherslu á það á síðasta ári þegar við fórum með formennsku í Norðurlandaráði, ég og þáverandi hv. þm. Oddný G. Harðardóttir, og Íslandsdeildin öll, að kynna okkur mjög vel það sem var í gangi á embættismanna-„levelinu“ líka. Ég held að það færi líka vel á því að kanna það einmitt hjá stofnununum til að við áttum okkur betur á þessari „synergíu“ sem er í gangi og getum betur samnýtt okkar krafta. Ég held að þetta sé prýðisgóð hugmynd.
Ég vil líka ítreka mikilvægi þess að við séum alltaf þátttakendur í norrænu samstarfi. Ég er alveg viss um að hin Norðurlöndin geti lært ýmislegt af okkur og við höfum mikið fram að færa. Þegar við komum inn á þetta svið almannavarna þá eigum við svo sannarlega mikla þekkingu. En heilt yfir alltaf þá erum við nú minnst, með minnstu stjórnsýsluna, og þetta eru okkur stærri ríki sem eru með fjölda sérfræðinga á öllum sviðum. Ég held að það sé nánast undantekningarlaust að við græðum á norrænu samstarfi. Þess vegna vil ég ítreka það, og það er bara ágætt að hæstv. ráðherra heyri það líka, að ég held að það sé mjög mikilvægt að við séum alltaf með. Ég hef til að mynda lagt fram fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra um af hverju við vorum ekki þátttakendur í drónasamstarfi sem hin Norðurlöndin skrifuðu undir ekki alls fyrir löngu og ég bíð mjög spennt eftir svari. Ég held að við eigum bara alltaf að vera með. Þegar kemur að almannavörnunum, orð sem við höfum notað í norrænu samstarfi, samfélagsöryggismálum, þá er stundum ekkert langt á milli borgaralega öryggisþáttarins og svo heröryggisþáttarins. Vegna þess að við erum ekki með her þá held ég að við þurfum enn þá meira á því að halda að horfa á hvað hin Norðurlöndin eru að gera í þessum efnum. Það er auðvitað þannig að við erum oft að sinna alls konar hlutum á sviði borgaralega öryggisins sem herinn myndi gera annars staðar. (Forseti hringir.) Ég ætla að nefna sem dæmi varnarvegginn utan um Svartsengi. Ég er nokkuð viss um að ef við værum með her þá hefði herinn komið og gert þetta.