157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:17]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sitt erindi og málafylgju í þessu máli. Þetta er ekki fyrsta atrennan. Í þessu máli, eins og reyndar í fleiri málum sem hv. þingmaður hefur komið með inn í þennan sal nú á undanförnum dögum, er ekki alveg laust við að finna megi álitamál. Ég velti því t.d. fyrir mér, frú forseti, að í greinargerðinni er talað um annars vegar að opinber íhlutun sé ónauðsynleg en í næstu línu á eftir er talað um meira frelsi. Þetta kallast ekki alveg á. Síðan getum við farið, hv. þingmaður, niður um eina línu enn og þá er talað um að með frumvarpi þessu sé lagt til að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls. Síðar í greinargerðinni er ítrekað að með frumvarpinu sé lagt til að felld verði á brott umrædd skilyrði fyrir dreifingu ösku enda verði hún gefin frjáls. Ég gat ekki betur heyrt, frú forseti, en að í yfirferð hv. þingmanns væri engu að síður ljóst af hennar hálfu að þetta yrði auðvitað aldrei alveg frjálst. Það verða einhverjar takmarkanir að vera á þessu. Hv. þingmaður nefndi Austurvöll og ég hugsa að það megi nefna fleiri staði. Hún nefndi ömmu sem kannski bjó einhvern tíma einhvers staðar og nú er það land kannski bara í eigu einhvers annars. Það er það fyrsta sem mér dettur í hug. Næst dettur mér í hug til að mynda Þingvellir eða aðrir slíkir staðir sem geta orðið mjög eftirsóttir; hvort það sé ekki mat hv. þingmanns að þetta þurfi að vera mjög skýrt og vel farið yfir það hvar við hyggjumst leyfa þetta þótt ég sé í grunninn sammála hv. þingmanni um að gefa meira frelsi í þessum málaflokki.