157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:19]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég og hv. þingmaður erum í smáágreiningi hér um orðalag en það segir í greinargerðinni, með leyfi forseta: „Er það álit flutningsmanna að sú opinbera íhlutun,“ sem eigi sér stað í dag, með núverandi reglum, „sé ónauðsynleg og engin ástæða til annars en að einstaklingar hafi meira frelsi um hvernig og hvort jarðneskar leifar þeirra séu varðveittar, grafnar eða þeim dreift.“ Hér er því sem sagt verið að vísa í þá miklu opinberu íhlutun sem er til staðar í dag og verið að tala fyrir auknu frelsi.

Hv. þingmaður spyr hér einmitt og jú, það er alveg rétt, það þurfa að vera einhver mörk á þessu. Ég held að það einfaldasta hvað það varðar sé að þú getur auðvitað ekki farið inn í garðinn hjá nágranna þínum og gert hvað sem er þar. Það á líka við um að dreifa öskunni hennar ömmu í garðinum, að þú þurfir sem sagt leyfi til að fara inn á eignarland einhverra. Ég nefndi Austurvöll líka sérstaklega í þessu samhengi og þetta er einmitt ástæðan fyrir því að það er ákveðin reglugerðarheimild til ráðherra sem gæti tekið á slíku.

Út af því að hv. þingmaður nefndi hér Þingvelli sé ég t.d. ekkert á móti því en mögulega eitthvað á móti því að verið væri að setja minningarskilti upp þar. Það væri þá bara í reglum á Þingvöllum að ekki mætti setja skilti á tré eða steina hér og þar. Mögulega væri ástæða til að Þingvallanefndin fyndi einhver svæði þar sem slíkt mætti. Sjálf sæi ég ekki annmarka á því. En út af því að hv. þingmaður nefnir Þingvelli þá er sú fréttamynd sem ég var að vísa í hér áðan af því þegar verið er að dreifa ösku yfir Gullfoss. Það var bara erlendur ferðamaður sem ég ætla að leyfa mér að halda að hafi ekki haft hugmynd um að það væru einhverjar reglur á Íslandi um slíkt, og það hefur ekki, að ég held, skaðað neinn. Ég hef líka lagt þetta fram ansi opið og segi bara: Ef nefndinni finnst þurfa að vera einhver frekari rammi um þetta þá er bara að setja hann og koma með breytingar þess efnis í nefndarvinnunni.