157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:22]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar. Hér kemur líka fram í greinargerð: „Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á umræddum lögum en þær hafa fyrst og fremst snúið að verkaskiptingu milli sýslumanna og lögregluembætta og breytingum á heiti ráðuneytis viðkomandi málaflokks.“ Geri ég ráð fyrir að greinargerðin sé samin áður en lög um sýslumenn voru hér til umfjöllunar á dögunum. Þingmaðurinn leiðréttir mig ef það er rangt. Ef svo er kallar það á endurskoðun þarna á greinargerð. Annað sem mig langar að nefna við hv. þingmann er að hér eru talin upp nokkur dæmi frá Norðurlöndunum og ég rek sérstaklega augun í dæmi frá Svíþjóð þar sem mér sýnist þetta vera svona tiltölulega mikið frjálst en engu að síður ekki alveg óháð eftirliti. (Forseti hringir.)

Frú forseti. Mætti ég spyrja hv. þingmann hvort hún hafi skoðun á því hverjar þessara leiða sem nefndar (Forseti hringir.) eru í þessu dæmi falli best að hennar hugmyndum?