157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:25]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar í þessu andsvari mínu að byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir þrautseigjuna. Ég veit ekki hversu oft þetta mál hefur verið lagt fram á þinginu en ég hef alla vega fjallað um það tvisvar og ekki búinn að vera ár á þingi. Það segir kannski eitthvað. En frumvarpið er gott og það er gott að fá það fram. Eins og hv. þingmaður kom inn á ræddum við þessi tækniatriði í síðustu viku þegar við fjölluðum um frumvarp um breytingu á lögum um kirkjugarða, þegar við vorum að fjalla um líkgeymslurnar, varðandi það hvenær má taka breytingartillögu fyrir og hvenær ekki. Niðurstaðan er sú að við erum komin með þetta frumvarp, það er hér í 1. umræðu og verður í framhaldinu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar þar sem við ætlum að senda það út til umsagnar og taka það til vinnslu í nefndinni. Ég tek undir orð þingmannsins um viðbrögðin. Ég hef líka fengið viðbrögð víða að úr samfélaginu þar sem fólk er að fagna þessu, að þetta sé réttlætismál, að þetta sé frelsismál og það sé bara gott að fólk fái að dreifa ösku með þeim fyrirvörum þó sem þingmaðurinn nefndi. Það er ekki bein spurning í þessu en ég ætlaði aðeins að koma inn á þetta með skráningarnar. að það séu settar einhverjar reglur til að halda að einhverju lágmarki utan um þetta, t.d. að það sé skráð að viðkomandi ösku hafi verið dreift utan kirkjugarða og annað slíkt og að það séu einhverjar reglur. Ég sé fyrir mér mjög þaulsetna þingmenn sem vilja síðan endilega láta dreifa ösku sinni í garði þingsins, en kannski vitum við það ekki endilega. En það þarf að vera einhver smá rammi og spurningin er kannski hversu mikill sá rammi eigi að vera. Ég þakka þingmanninum aftur fyrir þetta og hlakka til að fjalla um þetta mál í allsherjar- og menntamálanefnd.